Æskan

Volume

Æskan - 01.12.1973, Page 43

Æskan - 01.12.1973, Page 43
Ferðalangarnir í heimsókn hjá Volvo-verksmiSjunum í Gautaborg. móttökusal gistihússins, og ekki lét Karin standa á sér. Þarna beið hún, vel útsofin og brosmild og var í bezta skapi, enda þótt hún hefði orðið að bíða eftir þeim til kl. 23:00 kvöldið áður. Nú var ekið sem leið lá til Volvo- verksmiðjanna. Þær liggja úti á Tors- landa, örskammt frá flugvellinum. Þar er geysistórt svæði, sem tilheyrir þess- ari stærstu bílaverksmiðju á Norður- löndum og sennilega stærsta einka- fyrirtæki í Skandinavíu. Veðrið var svo dýrðlega gott, að það var næstum synd að fara inn í vinnusalina, eða svo fannst drengjunum. Þó var til- hlökkunin og forvitnin vegna þess að I eiga nú að sjá, hvernig bíll væri smíð- aður, öllu öðru yfirsterkari. Við aðal- inngang í verksmiðjuna tók maður úr kynningardeild fyrirtækisins á móti þeim. Þau urðu að skilja myndavélar sínar eftir við hliðið, því að bannað er að taka myndir inni í verksmiðj- unni. Iðnaðarnjósnir eru ekki síður vel þekkt fyrirbrigði en pólitískar- og hernaðarlegar njósnir. Öll fyrirtæki, sem eiga í harðri samkeppni við önn- ur svipaðs eðlis, banna því mynda- tökur gesta, sem koma í heimsókn. Þetta kom þó ekki að sök vegna þess að fyrirtækið gaf þeim myndir og bæklinga með upplýsingum um starf- semina, sem er margþætt og mjög umfangsmikil. Þau settust upp á lít- inn vagn, sem dreginn var af litlum traktor. Maðurinn, sem hafði tekið á móti þeim, stóð fremst á vagninum og talaði við þau í gegnum hljóð- nema og hátalarakerfi. Þetta var hin skemmtilegasta ökuferð meðfram verk- smiðjubyggingunum, sem þarna eru 1300 metrar á lengd. Þau héldu fyrst inn í verksmiðju, þar sem þrykktir 5 eru hlutir, sem eiga að fara í bílana. Þarna voru stórar rúllur úr stáli. Af rúllunum var dregið eins og þegar ! umbúðapappír er tekinn til þess að pakka inn vörum í matvörubúð. Þarna fóru hins vegar stálþynnurnar inn í stórar vélar, margra mannhæða háar, sem skáru þær til og mótuðu, stönsuðu þannig að úr urðu hliðar í bíla, þök í bíla, kistulok, vélarhús, vélarhlífar og allt, sem heiti hefur. Þau óku hægt um inni í þessum stóru vinnuskálum og horfðu á risa- vaxnar vélarnar móta stálið og klippa það. Risahendur úr stáli gripu plöt- urnar um leið og þær komu undan þessum þungu pressum, sem þrýsta með mörg hundruð lesta þunga. Fjöl- mennt starfslið stóð við vélarnar, stjórnaði þeim og færði hluti milli þeirra. Þarna tók eitt við af öðru og varð ekkert lát á. Áfram hélt vagninn með þau, og nú sáu þau, hvar byrjað var að setja sam- an bílana. Gólfin í þéssa verðandi bíla komu rennandi á færibandi. Síð- an komu hliðarnar, þá þakið, og allt var þetta soðið saman með risavöxn- um punktsuðuvélum. Sjálfvirkni var geysilega mikil, en fararstjórinn út- skýrði, að sumt væri ekki hægt að vinna með vélum. Þar yrði manns- höndin að koma til. Þarna unnu karlar og konur hlið við hlið að hinum vandasömustu iðn- aðarstörfum. Konur eru fjölmennar í starfsliði Volvoverksmiðjanna og gegna þær margar miklum ábyrgðar- stöðum sem verkstjórar og eftirlits- menn. Á þessu ferðalagi varð þeim ljóst, hversu geysistórt fyrirtæki Volvo er. Áfram var haldið, og eftir því sem ferðinni miðaði meðfram samsetning- arböndunum sáu þeir meira af því, hvernig Volvobílarnir verða til. Þeg- ar sjálft bílhúsið var tilbúið, voru settar á það hurðir, kistulok og vélar- húslok. Við samsetningarböndin stóð fólk sérþjálfað í þessum störfum og virtist ekki hafa mikið fyrir lífinu, en auðvitað varð hver maður að vinna sitt ákveðna hlutverk á meðan bíllinn var á lians „yfirráðasvæði". Ef það skeikaði, þá gat komið til þess, að t. d. vantaði eina hurð í bílinn, og allir vita, að hurðarlausan bíl er ekki gott að kaupa. En eftirlitsmenn sjá um, að allt sé rétt saman sett og vel gert. Endanlega er svo farið yfir allan bíl- inn, áður en hann er málaður. Stúlk- ur, sem eru sérhæfðar í þeim störfum, krítuðu með venjulegri skólakrít á „boddíið“, þar sem þurfti að fylla í eða lagfæra, og síðan fóru þessir bíl- ar, sem nú voru búnir að taka á sig 41

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.