Æskan

Volume

Æskan - 01.12.1973, Page 83

Æskan - 01.12.1973, Page 83
ER ÁFENGI FÆÐUTEGUND? Helztu hlutverk fæöunnar eru þessi: 1. Hún lætur líkamanum í té þau efni, sem hann þarf tii að byggja upp frumur sínar. 2. Hún leggur vöðvunum tll eldsneyti, svo að þeir geti starfað. 3. Hún viðheldur brunanum, svo að lík- amshitinn haldist alltaf jafn, eða um 37 gráður C. Mestur hluti fæðunnar notast sem eins konar eldsneyti, er brennur í frumum lík- amans. Vöðvarnir, sem eru hreyfingartæki líkamans, vinna eftir sama lögmáli og venjuleg aflvél í blfreið eða báti. Þær ganga fyrir benzíni eða olíu, en vöðvavélin fyrir sykurefni. Þess vegna þurfum við að AFENGl „BRENNUR” í UFRINNI Þegar maður vinnur, brenna meiri sykurefni í vöðvunum en þegar hann hvílist. En þegar menn neyta áfengis, brennir lifrin svo miklu af því sem hún megnar, þar til áfengið er að fullu horfið úr líkamanum. Og þetta starf fer fram jafnt hvort maður hvílist eða starfar. Lifrin er eins konar hreinsunartæki líkamans, sem gerir ýmis eiturefni önnur en áfengi hættulaus fyrir líkamann. Menn brenna trjálaufi, kvistum og öðru rusli, þegar þeir taka til í görðum sínum. Líkami mannsins brennir áfenginu í lifrinni til þess að losna við það, sem er líkamanum hættulegt. neyta fæðu, sem inniheldur mikið af sykur- efnl. Eins og sagt er, brenna sykurefnin og fæðan almennt í vöðvunum og mynda orku, en áfengið brennur f lifrinni, eins og hvert annað úrgangsefni. Það hefur verið sannað með vísindaleg- um rannsóknum, að líkamshiti manna, sem neyta áfengis, lækkar um V5t—1 gráðu, ef þeir eru staddir [ venjulegum stofuhita, en meira ef þeir eru staddir úti [ kulda. Áfeng- i3 dregur því úr líkamshitanum. Áfengið byggir ekki upp neinar nýjar frumur né bætir slit á þeim, sem fyrir eru. ÞaS eykur ekki vinnuorku líkamans. Sá, sem neytt hefur áfengis, þykist þó jafnan finna til melri máttar en venjulega, og einnig þykist hann verða þess var, að áfengið sé góður hitagjafi. En þetta eru allt skynvillur, elns og reynt verður að skýra I næsta kafla. Hlustleikur Hver getur bezt greint ýmis hljóð hvert frá öðru? Þa8 er bezt að prófa það. Þátttakendur taka sér blýant og pappír í hönd, setjast og snúa bakinu að stjórnandanum. Hann hefur útbúið skrá yfir ýmsa hluti, og I þeirri röð lætur hann þá falla á gólfið einn og einn I einu, um leið og hann gefur þátttakendunum tíma til að skrifa hjá sér ágizkunina af hljóðinu. Hlutirnir geta t. d. verið bolti, pottlok, band- prjónn, samanbrotið dagblað, bók, skór, appelsína, tvinna- kefli, lyklakippa, göngustafur. Og svo eru auðvitað verð- laun handa þeim hlutskörpustu. 81

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.