Æskan - 01.07.1978, Blaðsíða 47
hefurðu mjóstu htið þrí-
hyrningsins 1 cm breiða. —
Settu svo hveitilím eða annað
lím aftan á hvem þríhyrning
og rúllaðu þessu upp um
prjón. Auövitað á litsíðan að
snúa út. Miðoddurinn á að
lenda beint í miðjunni, því að
annars verður perlan ekki
falleg. Svo er hún dregin af
prjóninum og látin þorna, en
tekið er til höndunum við þá
næstu.
Það er merkilegt, hvað
þessar perlur verða skemmti-
legar. Sumar Ijósar, aðrar
dökkar, en allar fallegar.
Og nú kemur það, sem
setur punktinn fyrir i-ið —
lakkið. Það á ekki að lakka
fyrr en límið er orðið þurrt, svo
að perlurnar séu þéttar í sér.
Notaöu glært lakk og láttu
perlurnar þorna á títu-
prjónum, sem stungið hefur
verið á pappaspjald eöa tré-
bretti. Perlurnar endast ekki
aðeins lengur, þær verða líka
áferðarfallegri og litirnir
mýkri.
Perlurnar eru þræddar á
þráð, þegar þær eru orðnar
nógu margar og þá áttu
heimatilbúna perlufesti. Það
grunar engan, hvað þú gerðir
til aö búa hana til.
Það er líka fallegt að setja
fallegar glerperlur inn á milli
pappírsperlanna. Það er líka
hægt að búa til silkikögur við
festinguna, en það fer nú allt
eftir smekk hvers og eins.
BRÚÐUFÖT
Þeir, sem eiga börn, verða að
hugsa um föt á þau. Það er ekki
gaman að eiga litla, fallega brúðu,
sem á ekkert aö fara í. Það er erfitt
að sauma fötin á hana, en það er
líka gaman. Og alskemmtilegast
er aö vera svo dugleg að sauma
fötin sjálf.
Það er ekki erfitt að gera það, ef
þú hefur snið og leiðbeiningar við
saumaskapinn.
ÚTBREIÐIÐ
ÆSKUNA
megin við ávölu perluna og
miðperlurnar. Önnur hnöttótt
perla þrædd á þráðinn og
aftur að miðju. Þráðurinn
festur vel.
ARMBAND ÚR
GLERPERLUM
Það er auðvelt að búa til
fallegt armband úr glerperlum
á þræði. Til þess þarf engar
leiðbeiningar.'
Það er skemmtilegt að eiga
mörg armbönd og auðvelt að
búa til breið armbönd, sem
líta út fyrir að vera ofin á
perluvefi.
Fyrst eru 2 perlur þræddar
á þráðinn. Næst er ein perla
þrædd á og knippi myndað
með því að draga fremstu
perluna að þeirri síðustu.
Þannig er haldið áfram með
að þræða eina perlu á í einu
og draga þráðinn að þeirri
næstu og þræða þar í gegn
aftur. Þráðurinn á að vera
heldur laus, svo að unnt sé að
ýta perlunum aftur eftir
þræðinum, en ekki svo laus,
að „vefnaðurinn“ verði ekki
fallegur og jafn. Sífellt bætist
ein perla við og loks er búið
að þræða tvisvar í gegnum
þær allar.