Æskan - 01.01.1980, Page 49
NÝSTÁRLEGUR
FÓTBOLTALEIKUR
Þegar veturinn er kominn og við
höfum lagt fótboltann okkar til hliðar,
höldum við okkur í æfingu með því
móti að iðka fótbolta á stofuborðinu!
Á meðfylgjandi mynd sjáum við, hvar
bæði liðin eru reiðubúin til þess að
keppa.
Við útbúum tuttugu og tvo fótbolta-
kappa eins og þá sem sjá má á
myndinni. Með því móti að hafa liðin
máluð í tveimur litum, er hægt að ná
fram skemmtilegri eftirmynd af raun-
verulegu kappliði.
1,2, 3 og 4 sýna, hvernig keppend-
ur eru búnir til. Og þeir eru úr tré.
Kaupið sívalt prik 1" á þykkt, og þá er
það nauðsynlegasta fengið. Leik-
mennirnir eiga að vera um það bil 2
cm þykkir og 6,5 cm langir. Hætt er
reyndar við þvf, að þeir verði nokkuð
stirðir í fótunum, en til þess að bæta
úr þeim annmarka, útbúum við þá
með fjöður, sem þeir geta sparkað
boltanum með. Mynd 1 sýnir, hvernig
beygð er fjöður, sem er 1 mm á þykkt,
úrstálþræðl. Þegarfjöðrin hefurverið
beygð elns og sýnt er á mynd 2, þarf
að koma henni fyrir í leikpeðinu.
Raufin undir þessa fjöður má ekki
vera nema örlítið víðari en fjöðrin er
þykk. Þú stingur lengrl enda fjaðrar-
innar í raufina og kemur henni var-
lega fyrir á þann hátt sem myndin
sýnir.
5 og 6 skýrir á hvern hátt þetta er
gert.
Styðjirðu þumalfingrinum á höfuð
leikmannsins og dregur jafnframt
fjöðrina aftur, með vísifingri, geturðu
eftir svolitla æfingu fengið leikmann-
inn til að sparka forkunnar vel.
Boltann gerirðu úr korki — á að
giska 2 cm í þvermál. Notaðu til þess
rakblað, en gættu þess að skera þig
ekki. Pússaðu síðan á eftir með
sandpappír.
Fótboltavöllurinn getur verið stórt
borð eða gólfið. Við leggjum á það
þykkan, gráan pappír, t. d. umbúða-
pappír — minnst 2 m langan og 1,5 m
breiðan — og teiknum með reglu-
striku 6—7 cm breiða fleti á allan
pappírinn. Á þessa reiti seturðu síðan
tilheyrandi miðlínu og vítateiga.
Mörkin útbýrðu með járnvír og fín-
gerðu neti.
LEIKURINN SJÁLFUR
Ef þú kannt ekki venjulegar fót-
boltareglur, geturðu auðveldlega lært
þær af einhverjum kunningja þínum
eða íþróttablaði. Annars er hverjum
frjálst að nota þá leikaðferð, sem
hann og kunningjar hans eru vanast-
ir.
Það eru ellefu menn í hvorum hópi.
Röðun leikmannanna geturðu séó á
myndinni. Boltinn er settur rétt fyrir
innan miðlínuna þeim megin, sem
vinningurinn hefur komið upp, þegar
kastað var upp um þaö, hvor skyldi
byrja leikinn. Þegar boltanum hefur
verið sparkað í fyrsta skipti, er hvor
um sig frjáls í því, hvernig hann leikur
mönnum sínum. En best er, að hvor
um sig hafi ekki fleiri en þrjá á hreyf-
ingu í einu og báðir aðilar skiptist jafnt
á að sparka. Einnig er rétt að tak-
marka það svæði, sem hver leikmað-
ur má fara í senn, t. d. um fjóra reiti,
hvort heldur er til hliðar eða beint
fram.
Vinni svo hvor, sem best getur.
MINNSTI ASNII HEIMI
Enskur náungi í Bristol á
þennan asna, sem er tallnn
minnsti asni í heimi. Hann er
aðeins hálft þriðja fet á hæð
og er í miklu uppáhaldi hjá
börnunum.