Æskan - 01.11.1980, Side 15
vinnuvegur að rækta jólatré, og er
hann rekinn á vísindalegan hátt í
Bandaríkjunum. Eru þar ræktuð ýmis
^fbrigði sígrænna trjáa, sem hafa alla
Þá kosti, er jólatré mega prýða.
Greinarnar eru fagurlega lagaðar og
sterkar til þess að þola þungann af
því, sem á þær er hengt. Barrnálarnar
hafa ýmis litbrigði og þær losna ekki
þótt tréð komi í hita. Það getur því
staðið inni í stofu um öll jólin, án þess
að láta á sjá.
I engu ríki í heimi mun vera jafn-
aiikill markaður fyrir jólatré eins og í
Bandaríkjunum. Þar eru seldar 50
milljónir trjáa um hver jól. Þessi tré
koma öll frá Norðurríkjunum, en mest
ræktun jólatrjáa er í Pensylvaníu. Þar
er lítið fjallaþorp, sem heitir Indíana,
en það kallar sig „Jólatrjáa-höfuð-
borg heimsins", enda er hvergi á
byggðu bóli ræktað jafnmikið af jóla-
trjám og þar. Þeir, sem stunda þessa
ræktun, græða vel á því. Til skóg-
ræktarinnar geta þeir notað lélegt
iand, sem ekki er hæft til akuryrkju.
Og þessi skógrækt er einnig góð að
öðru leyti, því að með þessu er því
varnað að hrjóstrug lönd blási upp.
Nú eru jólatré ræktuð á rúmlega
100.000 ekrum lands og gefa góðan
arð.
Þegar Theodore Roosevelt varð
íorseti, hafði það verið venja um all-
mörg ár aó hafa úrvals fagurt tré í
Hvita húsinu á hverjum jólum.
Roosevelt ofbauð hve mikið var
höggvið af skógi á hverju ári til þess
eins að menn gæti haft tré á heimilum
sínum á jólunum. Hann gat þó ekki
bannað þann sið. En hann gerði ann-
3ð. Hann bannaði algjörlega að jóla-
tré væri í Hvíta húsinu. Ekki dugði það
bann þó alveg, því að synir hans
laumuðust með jólatré upp í herberg-
ið sitt, án þess að hann vissi af.
Þá var nýlega komin á laggirnar
stofnun, sem heitir Skógvernd
Bandaríkjanna. Forstjóri hennar var
Gifford Pinchot. Hann fór á fund for-
setans og tjáði honum, að það horfði
síst til landauðnar þótt ung tré væru
höggvin og höfð fyrir jólatré. Það væri
nauðsynlegt að grisja skógana, þeir
Reynið að gera þessa mynd af jólasveininum sem er að hella úr
pokanum sínum, fallegri með því að mála hana, annaðhvort
méð vatnslitum eða litblýöntum. Sendið blaðinu myndina fyrir
1. febrúar 1981. Fimm bókaverðlaun.
næðu við það betri þroska. Ef grisj-
unin væri framkvæmd á réttan hátt,
yrði hún til þess að skógarnir yrðu
betri.
Þegar Roosevelt heyrði þetta,
afturkallaði hann bann sitt og síðan
hefur jólatré verið á hverju ári í Hvíta
húsinu. Nú er farið að velja sérstakt
tré til þess, og var það einkaréttur
einhvers af Vesturríkjunum að velja
það og gefa. Um langt skeið voru þar
höfð „lifandi" tré, það er tré sem voru
tekin upp með rótum og jarðvegi, og
að loknum jólum gróöursett aftur á
einhverjum stað. Nú er þetta jólatré
klofið í skíð að loknum hátíðum og
geymt til þess að brenna á arni Hvíta
hússins á næstu jólum.
Sums staðar er það siður að safna
saman öllum jólatrjám eftir nýárið og
gera úr þeim mikið bál á þrettándan-
um til heiðurs vió Austurvegsvitring-
ana og Betlehemsstjörnuna.
Jólatré eru af ýmsum tegundum:
rauðfuru, hvítfuru, blágreni, rauð-
greni, balsam-furu, Douglas-furu
o. s. frv. Skemmtilegar þykja balsam-
fururnar, því að greinar þeirra koma í
kross með reglulegu millibili, og eru
því þessi tré talin tákn krossins helga.
Blágreni og norsk fura eru og í mikl-
um metum.
Þetta hafa skógræktarmenn í huga
og þeir velja sérstakan jarðveg fyrir
hverja tegund. Þegar kemur fram í
ágúst, senda þeir pöntunarlista til
viðskiptamanna sinna, svo að þeim
gefist kostur á því í tíma að velja þær
tegundir er þeir vilja helst. Allt haustið
eru menn svo önnum kafnir við að
merkja þau tré, sem á að fella, en
skógarhöggið byrjar ekki fyrr en
komið er fram á vetur. Fyrstu trén,
sem felld eru, eru geymd í frystiklefum
fram undir jól, svo að engin hætta sé á
því að þau láti á sjá.
Margur mun geta tekið undir með
litlu stúlkunni að fegurstu tré hér á
jöróu séu jólatrén. Af bernskuminn-
ingunum eru minningarnar um jólin
öllum kærastar, og það eru jólatrén
sem hafa varpað töfraljóma sínum yfir
þær.