Æskan - 01.11.1981, Blaðsíða 7
£ é
r -
mmmmm
tölulega fáir vita þó að söngurinn varð til
undir mjög áhrifamiklum kringumstæðum.
Það var um jóiaieytið árið 1918 í litla bæn-
um Nicola, Oberndorf, Saizburg. Enn mátti
sjá minjar eftir hina hörðu styrjöld Napo-
leons, sem gekk mjög nærri erkibiskups-
dæminu Salzburg, þar sem menn höfðu
alltaf haldið fast við gamaldags trú sína.
Fyrir áhrif franska keisarans árið 1802
breyttist Salzburg í furstadæmi, sem varð
eins konar leikbolti hjá furstunum við
samningagerðina í Vínarborg.
Árið 1814 var Salzburg sameinuð Aust-
urríki og ætlunin var sú að Salzburg yrði
erkibiskupsdæmi, en af því varð þó ekki
fyrr en árið 1824.
Á árinu 1818 hafði Napoleon þegar verið
tekinn úr umferð og hafður í haldi á litlu
eyjunni Helenu sem kunnugt er. Menn
voru því vongóðir að geta haldið frið, en
óvissan lá í loftinu og menn voru kvíðnir
fyrir framtíðinni.
Hinn einfaldi alþýðumaður leitaði styrks
í trú sinni, sem hann hafði hlotið í vöggu-
gjöf frá foreldrum sínum. Trú sem undan-
gengnar kynslóðir höfðu ávallt haldið
tryggð við.
Og nú rann upp jólakvöldið árið 1818.
menn bjuggu sig til miðnæturmessu í litlu
kirkjunni í St. Nicola.
En rétt fyrir messu urðu þeir þess varir,
prestur safnaðarins, Josep Mohr, og
organleikarinn, Franz Gruber, að orgelið
var hljómlaust. í hverju bilunin lægi vissu
þeir ekki, en ómögulegt var að fá nokkurt
hljóð út úr hljóðfærinu. í bænum var held-
ur enginn kunnáttumaður, sem lagfært
gæti orgelið.
Útlit var því fyrir að halda yrði miðnæt-
urmessuna án tónlistar. Það yrði reiðar-
slag og fólkið myndi líta á þetta sem jarð-
teikn um illan fyrirboða og draga úr því
kjarkinn.
Presturinn og organleikarinn reyndu að
hugsa upp öll möguleg ráð til að nota eitt-
hvað, sem komið gæti í stað orgelsins við
messuna og gert athöfnina hátíðlega.
Mohr og Gruber settust þá niður og fór
presturinn síðan að yrkja sálm, en Gruber
að búa til lag við hann. Eftir nokkrar
klukkustundir höfðu þeir lokið þessu og
voru nú tilbúnir að taka við fólkinu til
messunnar.
Moht hélt sína prédikun eins og til hafði
staðið, en síðan kom organleikarinn fram
og söng með hljómmikilli röddu þennan
nýja sálm. Spilaði han jafnframt undir á
gítar.
Að vísu var þetta alveg ný seremonía og
utan við venjulega kirkjuathöfn, en
söngurinn greip kirkjugestina og þeir fyllt-
ust andakt og hrifningu. Slíkt höfðu þeir
ekki upplifað lengi.
Presturinn og organleikarinn voru
ánægðir að hafa getað bjargað messunni.
En meira hugsuðu þeir ekki um þetta.
Nótnablaðið með textanum skildu þeir
eftir á orgelinu. Þeir litu á þetta sem tilvilj-
unarverk.
Nokkru seinna kom orgelsmiðurinn
Mauracher til St. Nicola til að gera við
orgelið. Þegar hann ætlaði að prófa hljóð-
færið, rak hann augun í nótnablaðið. Spil-
Þannig varð jólasálmurinn til
7
IHHiHHHHHHHHHBHBHHHHBH