Æskan

Volume

Æskan - 01.11.1981, Page 15

Æskan - 01.11.1981, Page 15
Hælakapphlaup. Jólasælgætinu er skolað nlður með gosdrykkjum. vegna er mikil ástæða fyrir þessi félög að halda upp á jólin. Það er gert á sérstökum jólafundum, sem eru yfirleitt haldnir í jólavikunni eða stuttu eftir jólahátíðina. Þá eru sungnir jólasálmar, lesin jólasaga, e. t. v. gengið kring- um jólatréð og útdeilt jólasælgæti. Oftast líta jólasvein- arnir við á þessum fundum. Að lokum er svo jólaguó- spjallið lesið og útskýrt og Guði þakkað fyrir jólin í bæn. En hvað er KFUM og K? Nú eru liðin nærri 140 ár síðan fyrsta KFUM félagið var stofnað í Englandi. Það var árið 1844 að fjórir ungirtrú- aðir menn stofnuðu með sér félag og ákváðu að hittast reglulega til að biðja og lesa Biblíuna. Fljótlega fjölgaði í félaginu og með tímanum breiddist KFUM út um England og síðan til annarra landa, m. a. Danmerkur. Stuttu fyrir síðustu aldamót kynntist íslenskur stúdent starfi KFUM í Danmörku. Hann tók þátt í starfinu og þótti góður starfskraftur. Þetta fréttist til íslands og íslending- urinn ungi var beðinn um að koma hingað heim og byrja sams konar starf á íslandi. Fyrst í stað var hann tregur til, en lét loks tilleiðast vegna hvatningar góðra manna. Hann hét Friðrik Friðriksson, oft nefndur sr. Friðrik. Og hann stofnaði KFUM í Reykjavík 2. janúar 1899. Fyrst í stað voru ekki margir í félaginu, en það efldist brátt. Að sjálfsögðu voru engar stúlkur í KFUM. Þeim þótti leitt að hafa ekki sams konar félag og drengirnir höfðu. Vegna þrábeiðni þeirra stofnaði sr. Friðrik KFUK 29. apríl sama ár. Allt frá fyrstu tíð hefur samstarf þessara félaga verið mjög náið. Eitthvað fyrir þig? Fyrstu árin var sr. Friðrik potturinn og pannan í starfi KFUM og K í Reykjavík. En með tímanum komu fram aðrir leiðtogar, sem tóku smátt og smátt við starfinu eftir því sem það óx. Þá voru stofnaðar félagsdeildir í úthverfum borgarinnar, eftir því sem hún óx, en áður hafði allt starfið farið fram á einum stað í gamla miðbænum. Einnig voru félögin stofnuð á fáeinum stöðum úti um landið. Nú starfa KFUM og K á sjö stöðum í Reykjavík og auk þess á Akranesi, Akureyri, Seltjarnarnesi, í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Vestmannaeyjum og Keflavík. Alls staðar er meðlimum skipt í deildir eftir aldri. Hóp- arnir hittast vikulega til funda. Þar er mikið sungið, oft sagðar sögur, sýndar myndir eða farið í leiki, og alltaf rætt lítillega um einhvern kafla í Biblíunni. Auk þessara funda eru oft stuttar ferðir eða ferðalög. Þá hafa KFUM-deildirnar oft keppt sín á milli í knatt- spyrnu eða borðtennis, og fleira mætti tína til. KFUM og K óska þér og fjölskyldu þinni gleðilegra jóla og vona, að þú finnir eltthvað við þitt hæfi í starfi félaganna á komandi ári! Ólafur Jóhannsson Tekið á í ferðalagi. Hlutverk ÆSKUNNAR er hafa verkefni hennar al< 15

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.