Æskan - 01.11.1981, Blaðsíða 32
■ æs:
FJOLSKYLDUÞMTUR
í umsjá Kirkjumálanefndar Bandalags kvenna í Reykjavík.
Jólahátíð Ijóss og friðar er haldin á
hverju ári meðal þjóðanna, til minningar
um fæðingu frelsarans er boðaði frið,
bræðralag og réttlæti hjá mönnum.
Enginn atburður hér í heimi hefur haft
jafn djúptæk áhrif á mannssálina og koma
Guðssonarins til okkar mannanna barna.
Við sem höfum notið þeirrar gæfu og gleði
að kynnast kristinni trú, höfum orðið að-
njótandi mikilla lífssanninda er borið hafa
og létt byrðar lífsins hjá mörgum.
Við eigum því láni að fagna að eiga
fullkomna fyrirmynd og háleitt markmið
að stefna að á lífsgöngu okkar þar sem
frelsari mannkyns er.
Jól á íslandi hafa yljað mörgum um
hjartarætur, flestir minnast sinna gleði-
ríkustu jóla frá bernsku- og æskudögum í
foreldrahúsum, og skipti þá líklega litlu
hvort heimilið var hreysi eða höll þegar
jólaljósin voru tendruð á kertunum og
Ijómi þeirra og birta lýsti allt upp, ólýsan-
leg dýrðartilfinning greip hug og hjarta
svo menn urðu betri en endranær. Áhrifin
frá boðskap jólanna virka því göfgandi á
flesta, margir fyllast þrá að gefa og gleðja,
sem er mesta sæla og lífsfylling hvers
manns.
Látum því söguna um barnið sem
fæddist í jötunni í Betlehem verða okkur
leiðarljós á vegi lífsins, biðjum Guð um
náð og styrk að feta í fótspor hans er öllum
gerði gott og sýndi í orði og verki að hægt
er að lifa á þessari jörð í sátt og samlyndi.
Eflum því með okkur kærleika og styðj-
um hvert annað á meðan má, í sorg og
gleði, látum streyma góðvild til náungans
eins og Kristur kenndi, og það er ekki
bundið við jól eða neitt eitt tímabil, heldur
ár og síð og alla tíð.
Gleðileg jól!
Vigdís Einarsdóttir
32
ÆSKAN er víðlesnasta og stærstabarna- og unglingablað landsins.