Æskan - 01.11.1981, Síða 46
U\ónguriLnn ocj j-átæ(za itútlzan
1. Einu sinni var ungur, ógiftur kóngur, sem
þurfti í stríð, sem geisaði þar nálægt ríki hans.
Hann var í leiðu skapi er hann hélt af stað og
hann hugsaði sem svo: ,,Ef mér gengur vel í
þessu stríði þá ætla ég að giftast fyrstu stúlk-
unni, sem ég mæti á heimleiðinni. Það gildir
einu hvort hún er rík eöa fátæk, Ijót eða falleg.
2. Nú, nú. Stríðið gekk vel og á heimleiðinni,
þremur mílum frá höll sinni, mætti hann ung-
lingsstelpu, sem leit út fyrir að vera mjög fátæk.
Hún stóð þarna við veginn svo ósköp um-
komulaus og vandræðaleg.
3. Telpan varfremur mögur og hún var klædd í
tötra. „Farðu niður og spuróu um hagi
hennar,“ sagði kóngur við ökumann sinn.
Hann gerði það. ,,Ég á þarna heima í
Títuberjabæ," sagði telpan og benti þeim í átt-
ina að bóndabæjum, sem sáust í fjarska.
4. Kóngur skipaði ökumanni sínum að sækja
foreldra stúlkunnar. Hann kom aftur að vörmu
spori með karl og konu mjög fátæklega til fara.
Kóngur sagði þeim nú Söguna af því, hverju
hann hefði heitið, ef sér gengi vel í stríðinu.
Skemmtileg myndasaga í litum