Æskan - 01.11.1981, Blaðsíða 51
Sjúkrahótel
hjálpartækjabanki
RKÍ annast rekstur sjúkrahótela íReykjavíkog
á Akureyri fyrir þá sem geta dvalist utan
sjúkrahúss en þurfa þó á hjúkrun að halda.
í samvinnu við Sjálfsbjörg er einnig rekinn
sérstakur hjálpartækjabanki í Reykjavík. Þar
eru lánuð, leigð og seld alls kyns hjálpartæki
fyrirfatlaðaog leiðbeiningarveittar um notkun
þeirra.
Gjafír og minningarkort
RKÍ berast stöðugt gjafir frá
einstaklingum og fyrirtækjum.
Áheit berast félaginu einnig
og veitir þessi tekjulind
RKÍ dýrmætan fjárhagslegan
stuðning, sem um leið vitnar
um hlýjan hug og örvar til
dáða. Þá selur Rauði Kross-
inn minnihgarkort og er
algengt að fólk gefi RKÍ á þann
hátt fé til minningar um ætt-
ingja og vini.
? HVER VEIT HVAÐ? ?
Þessi leikur getur skemmt bæði ungum og fullorðnum, hvenær sem er. Hann
gefur þátttakendum færi á aö sýna, hve mikið þeir vita, og það er alltaf gaman.
Einn er leikstjóri, annar er dómari, og svo eru spurningar lagðar fyrir þátttak-
endurna og þeir fá stig eftir því hve gott svarið er. 2 stig fyrir rétt svar, 1 stig fyrir
gallað svar og 0 fyrir skakkt eða ekkert svar.
Rétt er að skipta spurningunum í flokka, t. d. landafræði (er Alsír borg, land
eða hópur), sögulegar (nefnt ártal þriggja styrjaldarloka), bókmenntalegar
(var Jónas Hallgrímsson skáld — hvað lærði hann), náttúrufræðilegar (er
hvalurinn stærsti fiskur í heimi?), kímni (hver drap hann Abel?) eða almennar
(hvað er radar?). — Þá er önnur tegund spurninga, sem aðeins á að svara með
já og nei. En þeim á að svara samstundis og enginn umhugsunarfresturgefinn.
Þar geta ekki eins margir og vill verið með og þeir eru spurðir í röð. í hvert skipti
sem einhver svarar skakkt verður hann að fara úr hópnum, en sá sem lengst
svarar rétt vinnur. Hér eru nokkrar spurningar sem hægt er að nota:
Getur vélritunarstúlka fengið blöðrur á iljarnar?
(já)
Er Jónas Jónsson ráðherra í ríkisstjórninni? (nei)
Er flatarmálsfræði námsgrein um myndir?(já)
Er 29. febrúar hlaupársdagur? Oá).
Er Hekla hærri en Eyjafjallajökull? (nei)
Er Torfajökull stærri en Snæfellsjökull? (nei).
Fer hljóðið hraðaren Ijósið?
(nei).
gesturá þúsundum heimila um allt land.
47