Æskan - 01.11.1981, Page 59
pappír, t. d. rautt og blátt eða gult og
grænt o. s. frv. Pappírsblöðin eru
brotin saman og klipptar tvær rifur, 8
cm langar inn í hvort þeirra (sjá
mynd). Síðan er fléttað þannig: Nr. 4
gegnum nr. 1,2 gegnum 4, 4 gegnum
3,1 gegnum 5, 5gegnum 2,3gegnum
5, 6 gegnum 1,2 inn í 6, 6 inn í 3.
Þá er fléttunni lokið og aðeins er þá
eftir að klippa til að ofan, þannig að
hjartalag komi á pokann, og svo að
festa handfang eða höldu á með því
að líma pappírsrenning, hæfilega
langan, að innanverðu í pokann.
Mynd 3 og 4.
Að síðustu er svo hér karfa, sem
mjög fljótlegt er að búa til. Strikið á
karton, sem getur verið í hvaða lit sem
er, hring t. d. eftir undirskál. Klippið
hringinn nákvæmlega og brjótið
saman í miðju. — (sjá mynd A og B.)
Límið saman og setjið handfang á,
sem mætti gjarnan vera með öðrum
lit. Þá er komin karfa tilbúin á jólatréð.
Mynd 5.
Gleðileg jól.
Jólin nálgast og þau eru fyrst og
fremst hátíð barnanna. Annars má
segja, að á jólum heimsækjum við,
sem eldri erum orðin, æsku okkar í
minningum. Fyrrum var ekki mikið
skraut kringum börnin á jólunum, en
nú er það komið. Hér sjáið þið þrjá
prúðbúna bræður við skreytt jólatré
sitt.
JÓLAFÖNDUR
55
— Ég átti að skila kveðju og segja,
að hann Arnór væri veikur og gæti
ekki komið í skólann í dag.
— Hvern tala ég við?
— Það er hann pabbi minn._