Æskan - 01.01.1984, Blaðsíða 36
Gleðilegt ár!
Við þökkum ykkur fyrir mörg góð og
skemmtileg bréf. í þeim hefur verið lýst
ánægju með blaðið — minnt á efni er fjaiia
mætti um — spurst fyrir um ýmis atriði — og
bent á sitthvað sem betur mætti fara.
Við vonum að þið verðið dugleg að skrifa á
þessu afmælisári og verðið skilvís í greiðslu
áskriftargjalda.
Árinu er stundum líkt við mannsævi. Ung-
barn er þá tákn fyrstu daga þess, öldungur
hinna síðustu. Jafnframt því að óska lesend-
um Æskunnar farsæls nýs árs birtum við
nokkrar myndir af ungviði. Myndina hér til
hliðar tók Sigurður Þorgeirsson Ijósmyndari.
Snemma beygist krókurinn ...
Sunneva, fimm mánaða, heldur þéttingsfast um Bóka-
skrá Æskunnar og virðist ekki á því að sleppa. Við
skulum vona að pabbi, mamma og systkini hennar hafi
þó ailra náðarsamlegast fengið að líta í skrána líka. '
Komdu, litla lambið mitt...
Kristján Hólm Tryggvason, Holtagötu 7, Drangsnesi,
sendi okkur þessa mynd og sagði: „Á myndinni er hún
systir mín. Hún heitir Katla Ingibjörg. Hjá henni er lamb
sem var svo lasið þegar það fæddist að afi kom með
það heim. Þá batnaði því fljótt.“
36