Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1986, Síða 26

Æskan - 01.05.1986, Síða 26
FJARKÖNNUN OG A x X ð þessu sinni œtla ég að biðja ykkur að fara með mér í smáferðalag og huga að þvísem er að gerast ígeimnum. Eins og þið sennilega vitið er ekki ýkja langt síðan fyrsta geimfarinu eða gervitunglinu varskotið á loft. Það var4. október 1957. Sá atburð- ur vakti heimsathygli enda er 4. október 1957síðan talinn einn af merkisdögum mannkynssögunnar. Fyrsta slíka gervitunglið var rússneskt og kallaðist Spútnik. Ýmsir aðrir atburðir geimvísindasög- unnar hafa vakið mikla athygli og verið í heimsfréttunum en það er hins vegar ekki öllum ljós að sífellt er verið að skjóta á loft gervitunglum og gegna þau hinum ólíkustu hlutverkum. Mörg þeirra eru notuð við fjarskipti, útvarp og sjónvarp, en önnur til könnunar á yfirborði jarðar. Lönd og höf eru mynduð í sífellu. Þar sést gróður jarð- ar, fjöll, dalir og borgir, hafstraumar og ský. Notkun gervitungla við athugun á yfir- borði jarðar og skýjabreiðum nefnist fjarkönnun. Geysilegar framfarir hafa orð- ið við smíði tækjanna sem send eru upp með gervitunglunum. Sum tækin skynja ljósgeisla líkt og myndavélar en önnur skynja geislun á öðrum bylgjuiengdum. Þau geta skynjað geisla sem mannlegt auga verður ekki vart við. Enn önnur skynja geisla sem smjúga gegnum skýin. M. ö. o. sum gervitunglin, sem svífa umhverfis jörðina, geta tekið myndir af yfirborði jarðar þótt það sé myrkri hulið og önnur geta tekið myndir af jörðinni þótt hún sé sveipuð skýjum. Alþjóðlegt samstarf Það er feiknalega dýrt að smíða gervi tungl og skjóta þeim upp. Einungis ríkus1 þjóðir geta veitt sér slíkan munað einar og óstuddar. Minni þjóðir hafa því komið a samstarfi sín á milli sem stórþjóðirnar ta reyndar þátt í líka. íslendingar notfæra s á ýmsan hátt þessa nýju tækni og munu væntanlega gera það æ meir eftir því seu1 líður. Það er eins og gefur að skilja einuUr is gert í samvinnu við aðra. Evrópska geimvísindastofnunin, seff> samstarf Evrópulanda um fjarkönnun, skipuleggur nú miklar rannsóknir á löndum, höfum og hafís með hjálp gerVI’., tungla. Hið fyrra fer á loft árið 1989 en h> seinna nokkrum árum síðar. Gervitungl heita ákveðnum einkennisnöfnum eins og flugvélar og skip. Nöfnin á evrópsku ger'' tunglunum eru ERS-1 og ERS-2. Eins og þið sjáið á ártalinu þarf að ef 26

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.