Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1986, Síða 53

Æskan - 01.05.1986, Síða 53
 ■ ■ SSa "Sh ^ væMm o Jmmin B • > AmuHmMSIk Sandra Lauer er fædd 18. maí 1962 í Saarbriicken í Þýskalandi. Hún er 169 sm íiá en vegur aðeins 50 kg. Hún er dökk- hærð og brúneygð. Foreldrar hennar heita Robert og Karin Lauer. Gaston bróðir hennar er 25 ára og vinnur hjá tölvufyrir- tæki. Helstu áhugamál Söndru eru dans og skíðaferðir — í snjó og á sjó! Hún á gælu- dýrið Chow Chow „Pascha“ — fimm ára úlfhund. Tólf ára söng Sandra fyrsta lag sitt á hljómplötu, „Andy mein freund“. Eftir það keppti hún um rétt til að taka þátt í Söngvakeppni Evrópu fyrir hönd Þýska- lands — en hafði ekki árangur sem erfiði. (Það beið annarrar Söndru sem við segjum frá síðar . . .) Næstu ár einbeitti hún sér að námi og það var ekki fyrr en hún var að verða 18 ára að hún fór að vinna sem tónlistarmaður. Hans Scherer heitir sá sem tók eftir hæfi- leikum hennar og aðstoðaði hana við að vekja á sér athygli. Hann hafði í huga að hún syngi ein. Sandra kaus þó heldur að ganga til liðs við hljómsveitina Arabesque en í henni voru stúlkurnar Michaela Rose og Jasmin Vetter. Lög þeirra nutu einkum vinsælda í Japan og þær báru úr býtum tvær gullplötur í landi hinnar rísandi sólar. Eftir það fóru Þjóðverjar að veita stúlkun- um eftirtekt. Engu að síður slitnaði upp úr samvinnu þeirra 1983. Sandra hélt nú áfram á eigin spýtur. Hún hafði kynnst tónlistarmanninum og framleiðandanum Michael Cretu í upp- tökuveri í Frankfurt og hann gerst um- boðsmaður hennar. - Fyrsta lagið, sem hún söng eftir það, „Japan ist weit“, vakti litla athygli. Sandra varð ekki verulega vinsæl fyrr en hún söng lagið „Maria Magdalena" en það hafði Michael samið gagngert fyrir hana. f viðtali var Sandra spurð hvort hún ætti sér einhvern eftirlætis tónlistarmann. „Já, ég er hrifin af David og Shaun Cassidy. Þegar ég var yngri átti ég óteljandi vegg- myndir af þeim. Ég hafði líka dálæti á Abba, Oliviu Newton-John og Pink Floyd. Mér finnst Madonna ágæt en hún er and- stæða mín. Maður þarf ekki að vera kyn- tákn til að ná frægð — til þess nægja góðir hæfileikar og þokki." „Maria Magdalena“ er vinsælasta lag Söndru og náði efsta sæti á flestum listum og „In the heat of the night“ gengur næst því. Skífur hennar The long play og In the heat of the night hafa báðar fengið 3 stjörnur - eða mjög góða dóma. TÓNLISTARKYNNING Umsjón: Edda Laxdal 53

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.