Æskan

Árgangur

Æskan - 01.07.1988, Blaðsíða 31

Æskan - 01.07.1988, Blaðsíða 31
h ft°nn* Lárus kinkuðu kolli. Diddi a 1 rétt fyrir sér í þessu. Það var sko Undrað prósent pottþétt. 9- Kafli ba'r^^5 kom r0^ gam^a. tvílyfta íyiárnshúsið söng eins og engill. j^. n r°kið í fullorðna fólkinu minnti l ?5Us á allt annað en engla. Það var kn taliega adt vitlaust. Pabbi Nonna l m 1 leigubíl alla leið frá Keflavík til Ss að ná í þetta afkvæmi sitt sem Vndilega þótt ekki húsum hæft. l r ^g skal kenna þér mannasiði þótt dr' aiia æytna’ sagði hann og kigub']]1113 niðuriutan a eftir ser tnn 1 v ^ddi 0g pabbi hans stóðu við grind- h fs rett hjá nýju blómunum og r [. u á eftir leigubílnum streða á móti ^nu út úr þorpinu. dv~ ^að er a^ þú haldir þig innan yfa í dag, sagði pabbi Didda byrstur og eri köflótta sixpensaranum sínum í arga hringi á milli handanna. h «UrUs hafði ekki hátt um sig. Það að K V£rið meiri háttar áfall að komast sn' Vl að draugurinn hafði verið stelpu- 'j?lran hún Dísa í dulargervi. Jafnvel gamli gat ekki varist brosti þeg- ^ honum varð litið á hetjuna fyrrverandi arus Ingóifsson Hannessonar. ^ | . erfiðum stundum var Grænhóll esti griðastaður Lárusar. Hann sat á Unni með hvíta fuglaskítnum, horfði • lr b°rpið og hlustaði á vindinn hvísla jn 1 eyrun. Nokkrir skrautlegir flug- rekar háðu orrustu um yflrráð yfir há- loftunum. Hannes afi kom út úr húsinu sem söng, fölur á vangann, og gekk að kart- öflugarðinum við hliðina á verkfæra- skúrnum. Hann studdi sig við staf og stóð lengi við garðinn og horfði út á haf- ið sem blés sig út eins og vígreifur dreki. - Þér var nær að vera að drekka þetta sull, hafði Þóra amma sagt þegar hann hafði kvartað undan hausverk þegar hann vaknaði. Sumir læra aldrei neitt, hafði hún bætt við og litið þýðingar- miklu augnaráði á Lárus. Lárus þótti líkur afa sínum, líkari honum en góðu hófí gegndi. Sumir sögðu að þeir hefðu púka í augunum. En það var sama hversu vandlega Lárus skoðaði í sér augun í baðherbergisspegl- inum. Aldrei kom hann auga á þennan púka. Hann hafði líka rannsakað augun í Hannesi afa í sama tilgangi en án árang- urs. Augun í afa hans voru alltaf á floti og ef það var púki í þeim hlaut hann að vera í kafarabúningi. Hannes afí var hættur að horfa út á hafíð. Hann skimaði laumulega í kring- um sig rétt eins og Lárus þegar eitthvað stóð til. Hann leit einu sinni snöggt að húsinu og lagði frá sér staflnn. Því næst hneppti hann frá sér jakkanum og dró hann upp yfír höfuðið, bjó til segl Vindurinn reif í seglið og Hannes afi hljóp af stað út í garðinn léttur á fæti. Lárus fór að hlæja. Og þegar maður er átta og hálfs árs og byrjaður að hlæja er ekki svo auðvelt að hætta. Hann hló og hló, rúllaði niður Grænhól í keng af hlátri og Tryggur gamli, sem hafði legið á maganum fyrir aftan húsbónda sinn, spratt á fætur og elti skottið á sjálfum sér, hæstánægður með lífið og tilveruna. Sögulok. Aðdáendum svarað í 8. tölublaði svarar Telix Bergsson, vinsæll söngvari og þáttagerðarmaður í útvarpi, 5purningum aðdáenda. Þegar hafa borist svo mörg bréf að við getum spurt Felix spjörunum úr. Er þetta blað berst ykkur verður vinnsla 8. tbl. svo Iðngt á veg komin að ráð er fyrir forvitna aðdáendur að skrifa samstundis bréf til okkar og hlaupa með það í póst. .. Látúnsbarkinn 1988, Arnar Freyr Qunnarsson, mun svara aðdáendum sínum í 9. tbl. 5purningar verða að berst okkur fyrir 30. september. Utanáskrift er: Æskan - Aðdáendum svarað - pósthólf 523,121 Reykjavík. 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.