Æskan

Árgangur

Æskan - 01.07.1988, Blaðsíða 42

Æskan - 01.07.1988, Blaðsíða 42
sandinum og undir hattinum eru ljósir lokkar og brosandi augu og munnur og Rut í heilu lagi. Og svo kemur Daníel í ljós og Sigrún og Elísabet og hafa grafið svo djúpa holu að Rut sést ekki þó að hún standi upprétt og Danni og Rúna ekki ef þau beygja sig í hnjánum og Beta ekki ef hún er í kút því að hún er elst og lengst. Og það er svo heitt í holunni að þau verða að fara að kæla sig í sjónum og þeim flnnst svo svalt þegar þau koma upp úr sjónum og golan leikur um þau að þau verða að þerra sig og leggjast í sólbað og þá er svo heitt að þau verða að kæla sig. . . En stundum þegar þau hlaupa niður að sjónum og upp frá sjónum reka þau tærnar í brúna þúst og er þá fólk og þau segja „afsakið“ ef þau muna það og fólk- ið segir undarleg orð sem þýða „allt í lagi, börnin góð,“ ef það kemur upp nokkru orði í þessu móki í sumri og sól. Samt eru margar mömmur glaðvak- andi og hamast við að bera á sig „sól- brunavarnarkremafbestugerð“ - sem er tölusett 2 og 4 og 6 og 8 og 12 og ég held ekki hærra. Og þær sem eru alveg hvítar bera á sig númer tólf - að minnsta kosti á neflð - og þær sem eru komnar með tvær brúnar freknur nota númer sex og átta En seinna uröu þær miklu brúnni. .! Allir finna sér eitthvað til að una við . . . og þær ljósbrúnu smyrja sig með tvö og fjögur en þær brúnu maka á sig sólolíu til að verða dökkbrúnar og svartar. Og sumir pabbar eru líka duglegir og vanda sig við að bera á sig krem með réttum tölustaf en stundum ruglast þeir þegar þeir horfa of mikið í kringum sig - því að það er margt sem er gaman að grandskoða á ströndinni - og þetta er líka mikill vandi og þarf stundum að nota sums staðar tólf en annars staðar átta og sex og fjögur og tvö - og sumir eru latir eða gleyma sér og verða rauðir og liggja í skugganum undir sólhlíflnni. En Bradley og Paul frá Englandi hafa byggt stóran kastala með virkisveggjum og síki og er eins og forfeður þeirra byggðu í gamla daga en voru miklu leng- ur að því og er eitt kastali og annað öðru- vísi kastali sem öldurnar slétta þegar fell- ur að. Og Vasco og Marie, sem eru portúgölsk eins og sandurinn hérna, moka í föturnar sínar og búa til kökur og hús sem er eins og fatan í laginu og flnnst kannski hvergi nema í sandi á ströndum. Og Filippía svífur um og nýtur þess að vera hér í góða veðrinu eins og fólkið en Filippía er fluga og það eru rnargir hræddir við að hún stingi þá og hlaupa frá þegar þeir sjá hana og æpa og emja eU þeir sem eru í móki megna ekki a hreyfa sig og sumir eru sofandi og ®e opinn munninn og þarna flýgur FilipP13 inn um opinn munn og áfram niður 1 maga og er óheppin því að þar er dinim1 og svart og hún kemst ekki út aftur til 2 svífa um loftið milli fólksins og ha 3 gaman af að hræða það svona Htil eD fólkið svo stórt! En nú er ég farinn að segja meira en það sem er alveg satt og verð að h#tta því að ég er að missa vald á pennanun1 og hugarfluginu og er farinn að svífa ufl1 eins og Filippía. . . - Og kannski hefur þér fundist þetta einkennilega skrifað og erfltt að lesa þaö og þá bið ég þig að virða mér vel að CS gat ekki skrifað háu'ðlega og með etn faldri upptalningu um það sem er og ger ist á ströndinni og er svo leikandi og letI og skínandi og skemmtilegt. En þetta var á ströndinni Maríu RdsU í Algarve-héraði í Portúgal í sumaf °S þangað skipuleggur Útsýn afar ág*tar ferðir. . . Hvað tákna teikningarnar? Hvað skyldi skopteiknarinn GIL haja hajt í huga þegar hann dró á blað þessi Jáu strik sem þú sérð inni i rammanum? EJlaust má lesa ýmislegt úr þeim. En lausnin, sem hann gejur upp, er birt á blaðsíðu 54. 421 tæska*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.