Æskan

Árgangur

Æskan - 01.07.1988, Blaðsíða 27

Æskan - 01.07.1988, Blaðsíða 27
Skátaþáttur Umsjón: Stefán Már 1: Lubbar Shálaferð skeriabua af kraft' Sðngnum stjórnað " varöe/d 17160 fore/drum **kan Skammt frá Kópaskeri er sveitabærinn Daðastaðir. Þar er hús sem skátafélagið á Kópaskeri hefur haft til afnota fyrir skálaferðir og ýmislegt annað. Snemma vors á þessu ári mátti sjá sex hressar skátastúlkur á leið þangað gang- andi frá Kópaskeri. Þær voru á leið í skálaferð ásamt öðrum félögum skátafé- lagsins. Hinir skátarnir voru þó ekki jafnduglegir og þessar ungu stúlkur heldur komu allir með vélknúnum öku- tækjum. . . Að kveldi dags þegar allir skátarnir voru mættir var útilegan hátíðlega sett með varðeldi. Þar var sungið og ýmislegt til gamans gert. Hópnum var skipt í fjóra hópa er starfa skyldu saman í ferð- inni. Seinna um kvöldið fóru allir inn á kvöldvöku sem heppnaðist með besta móti. Snemma morguninn eftir var allt lið- ið komið á fætur og boðið var upp á hina skemmtilegu heimaleikfimi sem allir skátar þekkja og eiga sjálfsagt góðar minningar um. . . Að leikflminni lok- inni var fánaathöfn með ímynduðum fána og fánastöng. Dagurinn leit út fyrir að ætla að verða hinn besti og veðrið var eins og best varð á kosið. Sólin var ein- ráð og hleypti regnskýjum hvergi að. Farið var í fjársjóðaleit eftir áttavita og betra liðið vann eins og við var að búast. Einnig var farið í „hike“-ferðir og „pósta“ og heppnaðist það hvort tveggja vel. Ekki má gleyma að minnast á frábær- an næturleik er fór fram um miðjan dag. Tvær ónefndar voru ekki sem best út- lítandi eftir hann. . . Á milli allra dag- skrárliðanna var hvíldartími sem flestir notfærðu sér hið ítrasta og gott var að liggja og dorma í sólbaði. Um kvöldið var foreldrum boðið að varðeldi. Komu þar allnokkrir og skemmtu sér flestir vel. Það eina sem spillti fyrir var að það var strekkings vindur og því erfitt að vera samtaka í söngnum. En annars gekk allt vel. Síðan fóru allir heim að lokinni vel heppnaðri skálaferð. Hulda Þórey skráði. i27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.