Skírnir - 01.04.1917, Page 41
148
Island og Norfturlönd.
[Skírnir
íslendingar eiga Dönum afarmikið gott að þakka, og að
við höfum þegið af þeim miklu meira en við höfum getað
látið þeim í té frá sjálfum okkur. Eg skal hér nefna
ýmislegt af því heizta. Fyrst andlegt líf þjóðarinnar.
Kaupmannahafnarháskólinn hefir dregið til sin fjölda is-
lenzkra mentamanna, og þeir hafa verið styrktir til náms
þar af dönsku fé mjög rausnarlega. Af þessu hefir leitt
að allur þorri islenzkra stúdenta hefir farið til þessa skóla
■og ekki til annara landa; fyrst nú eftir að ísland hefir
sjálft eignast háskóla í Reykjavík má búast við að þetta
verði öðru vísi; þó má ganga að því vísu, að margir
islenzkir stúdentar muni um langan aldur sækja til Dan-
merkur til að leita sér mentunar í greinum, sem ekki er
enn veitt kensla í í Reykjavík, þannig munu sjálfsagt
margir sækja fjöllistaskólann í Kaupmannahöfn, og hin
miklu íslenzku handritasöfn i Höfn, og þau kynstur, sem
þar eru af ritum er snerta sögu, tungu og bókmentir
Islands munu um allan aldur draga íslenzka mentamenn
til Danmerkur. Og það er auðvitað, að margra ára dvöl
í bæ eins og Kaupmannahöfn hlýtur að hafa talsverð
áhrif á andlega þroskun þeirra. Flestir þessara íslenzku
mentamanna hverfa þó aftur heim til íslands; nú á tím-
um kemur það sjaldan fyrir að íslenzkir mentamenn setj-
ist að i Danmörku fyrir fult og alt. Það eru þó til ein-
staka menn sem gera það, og íslenzka mentamannastéttin
liefir á þann hátt getað endurborgað lítið eitt af velgerð-
um þeim, sem þeim og stéttabræðrum þeirra hafa verið í
té látnar; þannig að nokkrir þeirra hafa orðið danskir
embættismenn og hafa þá starfað til gagns fyrir land það,
sem hefir auðsýnt þeim slíka gestrisni, og má jafnvel telja
þá með dönskum vísindamönnum og rithöfundum, að svo
miklu leyti, sem þeir hafa ritað á danska tungu. Og
þótt lítið sé um islenzkt kyn í Danmörku, þá fögnum við
íslendingar þó yfir því og þykir mikill sómi að, að tveir
af frægustu sonum Danmerkur, Bertel Thorvaldsen og
Kiels Finsen, eru af íslenzku bergi brotnir.
En það er ekki einungis samband íslendinga við