Skírnir - 01.04.1917, Qupperneq 110
Sklrnir]
Ritfregnir.
211
að auðga bókmentir vorar, er þeir leggja út í að bjóða íslending-
um leikrit. Mór hugnar það og ve', að hanu byrjar á Meynni frá
Orleans, bæði fyrir þá sök, að hún synir hvað ljósast hreinan hug
Schillers, öfluga trú á hið góða og eldlegan áhuga hans, svo sem
þýð. getur um í innganginum, og fyrir þá sök aðra, að mannkyns-
sagan greinir eigi frá annari merkilegri eða einkennilegri konu, en
þessari frakknesku mey, Jeanne d’ Arc, sem kvæðið er um gert.
Málum Frakka var komið í mjög óvænt efui árið 1428, þegar
Englar settust um Orleans. Tildrögin að því voru mörg og lang-
vinn. Filippus fríði Frakkakonungur gifti ísabellu dóttur sína Ját-
varði öðrum Englakonungi. Þeirra son var Játvarður IÍI konung-
ur yfir Englandi. Karl IV., sonur Filippusar fríða, dó sonarlaus,
og var þá aldauða karlleggur Capetunga. Á Frakklandi voru það
lög, að konur máttu eigi taka konungdóm og hvarf því ríkið undir
nánasta frændann, Filippus Valois 1328. En í Englandi voru kon-
ur arfgengar til ríkis, og þess vegna gerði Játvarður III. tilkall
til konungdóms á Frakklandi. Hann fekk þó eigi komið þeirri
kröfu fram og fór því með ófriði á hendur Frökkum og vann norð-
urhluta landsins. Stóð nú fjandskapur og deilur milli landanna
um heila öld, og veitti ýmsum betur. Á stjórnarárum Ríkharðar
annars (Játvarðssonar svartaprinz) náðu Frakkar afcur löndum sín-
uni, En er Hiniik V. kom til sögunnar og Karl VI. átti aðverja,
þá urðu Frakkar forviða fyrir og Hinrik V. krafðist hvers er hann
vildi. Gekk hann þá að eiga Katrínu konungsdóttur og var þá
sama sem kominn upp í hásætið. Nú horfði þó til hins betra í svip
er líkur voru til að Jóhann hugprúði hettogi Burgunda sættist viS
konung. En þá var það slysalega ódæði unnið af konungsmönnum,
þeir myrtu Jóhann (1419); varð þá sonur hans, Borgunda her-
t°gi, konungi frá'nverfur og vinur Engla. Hinrik V. dó 1422 í
1 arís og eftirlét ríkið syni sínum 8 máuaða gömlum, sem hann hafði
att við Katrínu. Setti hann Bedford hertoga umsjónarmann son-
ar sitts. Hafði hantt þá numið öll lönd fyrir norðan Leiru (Loite).
Karl VI. dó sama árið, og tók þá konungdóm sonur hans, Karl
Hafði hann lítið ríki og gekk þungt viðureignin, svo að þá
er Ettglar settust um Orleans, er honum reið lífið á að missa eigi,
þá megnaði hann enga hjálp að veita. En þá kom hjálpin úr öðr-
um stað.
I þorpi einu, Dómremy, nálægt landamærum milli Burgunda og
Lothringén, var ung og fátæk bóndadóttir, Jeanne d’Arc að nafni.
Hún var góð stúlka og guðhrædd og unni Frakklandi mjög, em