Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1902, Page 44
24
var að setja plóg í jörð og koma sér upp ofurlitlum
akurbletti, er sá mætti í korni á komanda vori.
Jóhann Hallsson nam land sunnan og austan
undir skógarbelti því hinu fagra, sem hylur báða
bakka Tungár (Tongne River), þar sem þorpið Hall-
son stendur þann dag í dag. þar eru landkostir hinir
beztu og jarðvegur sérlega feitur, en land fremur lágt.
Reisti hann hús sitt fyrstur manna og var það bjálka-
kofi, fjórtán fet á lengd, tólf fet á breidd, en veggirnir
fimm fet undir ris. Mun húsgerð þessari hafa verið
okið 23. júní. En ekki var samt flutt í húsið fvrr en
-> )
' ? ?>
Fyrati bjálkakofmn — lieimili Jóhanns Ilallssonar.
laugardaginn 6. júlí og voru það ekki færri en níu
manns, sem þar urðu að komast fyrir. Föstudaginn
27. júnf ól Ragnheiður Jóhannsdóttir, kona Gísla
Egilssonar, barn, klukkan 8.15 síðdegis, og sat Sigurð-
ur Jósúa yfir henni. Var það fyrsti Islendingurinn,
er fæddist í nýlendunni. Húsið, er Jóhann Halls-
son lét reisa þetta fyrsta sumar, stendur enn sem
menjar frá þessari fyrstu landnámstíð og er elzta húsið
f allri nýlendunni. Hjálpuðu þeir félagar hver öðrum
aö húsagerð og heyskap og komu furðanlega miklu til
leiðar. Urðu þeir þó oft að vinna hjá nágrönnum
sínum, er á undan þeim voru komnir og lengra voru á