Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1906, Síða 15
ALMANAK igo6.
3
hafi fyrst verið skift í klukkustundir áriS 293 f. Kr., þegar
sólskífa fyrst var smíðuð og sett upp í Quirinus-musterinu
í Róm. Þangað til vatnsklukkurnar voru uppfundnar
(árið 158 f. Kr.) voru kallarar (eða vaktarar) viðhafðir í
Róm til að segja borgarbúum, hvað tímanum liði. A
Englandi voru vaxkertis-ljós höfð fyrst frameftir, til að
segja mönnum, hvað tímanum liði. Var áætlað, að á
hverri klukkustund ejMdust 3 þumlungar af kertinu. Hin
fyrsta stundaklukka (tímamælir—sigurverk) í líkingu við
þær, sem nú tíökast, var ekki fundin upp fvrr en árið
1250. Fornmenn á Norðurlöndum töldu flestir, að dagur
bvrjaði með upprás sólar. Aþenumenn og Gyðingar töldu
hann byrja á sólsetri, og Rómverjar, eins og vér, á mið-
nætti.
Páskadagur
1907... . . . 31. Marz 1914... . . . 12. Apríl
1908. . . . . . 19. Apríl I9I5•■• ... 4. Apríl
1909... ...11. Marz 1916... .. .23. Apríl
1910... . . . 27. Marz 1817.... . . . 8. Apríl
1911 . . . 16. Apríl 1918.... . . .31. Marz
1912... . . . 7. Apríl 1919... . . . 20. Apríl
1913... . . . 23. Marz 1920... ... 4. Apríl
Sóltími.
Sólhringur er sú tímalengd er líður á milli þess, er
sólin gengar yfir ákveðna hádegislínu, og er það hin
eðlilegasta skifting tímans. En sökum hinnar mismun-
andi hreyfingar jarðarinnar umhverfis sólina og sökum
bugsins ásólargangslínunni(Ecliptic),er aldrei nákvæmlega
jafn-langur tími milli þess,er sól genguryfir ákveðna línu.
Af því leiðir, að það er lítt mögulegt að setja stunda-
klukku eftir sól. Til að ráða bót á þessum mismun, setja
menn svo að önnur sól sé til, og að hún gangi með jöfn-
um hraða þvert yfir miðjarðarlínunni. Er sú ímyndaða
sól þá stundum á undan og stundum á eftir hinni einu
virkilegu sól. Er sá mismurur mestur 16 mínútur. Rétt-
ur sóltími er miðaður við hina virkilegu sól, en hinn svo