Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1906, Page 71
ALMANAK 1906.
41
ast að láta upp vaxa meðal hveitisins skrautplöntu,
öllum heimi til yndis og sálubótar, þar sem skáldið
Ralph Connor er.
Mabel Mclsaac.
Ei-tir J. Magnús Bjarnason.
Allir íslending'ar, sem dvalið hafa í Nýja Skotlandi,
kannast við Musquodoboit-héraðið. I miðju héraðinu
er Cooks Brook og skamt fyrir vestan er Chaswood-
dalur. Þar átti Mabel Mclsaac heima. Húsið hennar stóð
í miðri hlíðinni að vestan, rétt fyrír sunnan Duncans-læk-
inri, sem kemur þar norðan hálsinn og steypir sér fram af
brúninni og grefur sig niður hlíðina beint á móti gilinu,
þar sem Floss-áin kemur ofan í dalinn af austari hálsin-
um. — Á vorin er Duncans-lækurinn vatnsmikill og
straumharður, og þá er hann látinn flytja trébolina til
sögunarmylnunnar.
Það er fallegt í Chaswood-dal, en býlin eru fá.
Kirkjan stendur á dáitlum hól í miðjum dalnum, og hálfa
mílu þar frá er grafreiturinn; hann er fast hjá póstvegin-
um. Og búðin stendur hálfa mílu þar fyrir sunnan. I
kring um grafreitinn er lágur grjótgarður og í kring um
hann er þétt röð af fallegum, hávöxnum álmtrjám. Það
þýtur þar ömurlega í laufinu, þegar golan fer um dalinn.
Og þegar tunglið veður í skýjum og stormur er, þá taka
skuggar trjánna á sig ýmsar kynja-myndir á leiðunum.
Fram hjá þessum grafreit þurfti Mabel Mclsaac að
fara, þegar hún fór til búðarinnar. Eg man, að eg sá