Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1906, Page 105
ALMANAK igo6.
75
Dakota og nam land í grend viö Hallson, þar sem svo
marg'ir Skagfirðingar tóku sér bólfestu. Kallaði hann bæ
sinn að Steinstöðum, því þar hafði hann búið síðast í
Skagafirði, og þar á hann heima enn, nú orðinn háaldrað-
ur maður.
Eggert, sem verið hefir 16 ára gamall þegar hann
kom frá íslandi, dvaldi í Nýja íslandi veturinn 1886 — 7,
bóluveturinn alkunna. En er vörðurinn var hafinn um
vorið, flýtti hann sér að komast þaðan. Var hann hingað
og þangað við ýmsa vinnuj þangað til hann settist að í
Winnipeg fyrir fult og alt sumarið 1880. Þá var Leifur
tekinn út að koma og var þá Stefán Pálsson helzti aðstoð-
armaður Helga Jónssonar við blaðið. Eggert Jóhannsson
var Helga ekkert kunnugur um þessar mundir, en Stefán
Pálsson þekti hann vel. Eitt sinn kom honum til hugar
um sumarið að þýða á íslenzku ofur-litla smásögu enska.
Og þegar hann var búinn að því, gekk hann með hana
upp á skrifstofu Leifs til að sýna kunningja sínum, Stefáni
Pálssyni, hana. Þá kyntist hann Helga heitnum Jónssyni
fyrst. Stefán Pálsson mun hafa alið á því við Helga
eftir það, að þar væri maður, sem hann ætti að fá sér til
aðstoðar við blaðið. Og varð það úr, að Eggert tók að
vinna við blaðið um haustið. Ritaði hann allar fréttir,
sem í það fóru, og bjó líka allar ritstjórnargreinir undir
prentun. Eftir það að Helgi flutti til Churchbridge haust-
ið 1885, ritaði hann sjálfur mjög lítið í blaðið, en fól rit-
stjórnina eiginlega Eggerti alveg á hendur, þótt hann léti
blaðið framvegis út koma með sínu nafni.
Það atvikast svo stundum í lífinu að menn verða það,
sem menn öldungis ekki ætla sér að verða. Það mun
hafa verið fyrirætlunum Eggerts Jóhannssonar allfjarri
að verða ritstjóri. Hann er maður hægur og stiltur og
að eðlisfari algjörlega yfirlætislaus. Hann hafði skóla-