Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1906, Page 117
ALMANAK 1906.
87
NELSON LÁVARÐUR.
Eftir Hjört Leó.
Tuttugasta og fyrsta októbermánaðar síSastliðinn,
héldu Englending'ar hundrað ára minningarhátíð þess
manns, sem öllum öðrum fremur hefir hafið sjóflotann
enska til álits, meðal þjóða heimsins, og Evrópa á að
rniklu leyti að þakka það, að Napóleon Bónaparte varð
ekki einvaldur yfir heiminum, eins og hann þráði.
Að sönnu hafði sjófloti Englendinga unnið mörg stór-
virki áður en Napóleönsku stríðin byrjuðu. Jafnvel þegar
naumast var farið að roða fyrir frægð Breta meðal stór-
þjóða heimsins, var það enski flotinn, sem varnaði því, að
hönd harðstjórans næði að ljósta landslýð allan með
þrælasvipunni, og afmá borgaralegt og' trúarlegt frelsi
Breta.
Það var árið 1588, að brezki flotinn vann sitt fyrsta
stórvirki.
María, dóttir Hinriks áttunda Englands konungs,
og fyrstu drottningar hans, Katrínar hinnar spánversku,
hafði leitast við að innleiða kaþólsk trúarbrögð á Englandi,
er höfðu verið úr gildi numin 1534, mestmegnis af póli-
tískum ástæðum.
Meðan María lifði, hafði Filippus annar Spánar-kon-