Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1907, Blaðsíða 14
4
Ól.AFUR S. THORGEIRSSON :
Páskadagar.
1908 .......19. Apríl
1909 .......11. Marz
1910 .......27. Marz
1911 .......16. Apríl
1912 ....... 7. Apríl
1913 .......23. Marz
1915 .........4- Apri'1
1916 ........23. Apríl
1917 .........8. Apríl
1918 ........31. Marz
1919 ........20. Apríl
1920 .........4. Apríl
Sóltími.
Sólarhringur er sú tímalengd,er líður á milli þess, er
sólin gengur yfir ákveðna hádegislínu, og er það hin
eðlilegasia skifting tímans. En sökum hinnar mismun-
andi hreyfiagar jarðarinnar umhvergs sólina og sökum
bugsins á sólargangslínunni (Ecliptic), er aldrei nákvæm-
lega jafn-langur tími milli þess,er sól gengur yfir ákveðna
línu. Af því leiðir, að það er lítt mögulegt að setja
stundaklukku eftir sól. Til að ráða bót á þessum mismun,
setja menn svo að að önnur sól sé til, og að hún gangi
með jöfnum hraða þvert yfir miðjarðarlínunni. Er sú í-
myndaða sól þá stundum á undan og stundum á eftir
hinni einu virkilegu sól. Er sá mismunur mestur 16 mín-
útur. Réttur sóltími er miðaður við hina virkilegu sól,
en hinn svo kallaði ,,meðal sóltími“ aftur á móti, er mið-
aður við hina ímynduðu sól. Til skýringar má geta þess
að það er að eins á tveimur dögum á árinu — á jafndægr-
um haust og vor — að „meðal sóltíma11 og réttum sól-
tíma ber saman, því á þeim tveim dögum að eins er bugr
línan eða sólargangslínan yfir miðjarðarlínunni.
Til minnis um ísland.
Fyrst fundið ísland af írum á 8. öld. Af Norð-
mönnum 860.
Fyrst varanleg bygð hefst 874.
Fyrsta Kötlugos, er sögur fara af, 894.
Fyrstu lög og alþing sett 930.
Fyrstur trúboði, Friðrik biskup, saxneskur, 981.