Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1907, Blaðsíða 99
ALMANAK 1907.
71
hlynning- og; eftirlit meS fólki, nýkomnu frá íslandi, er
félaust stóö uppi og einhverrar hjálpar hlaut áö njóta,
til að hafa hæli og viöurværi á fyrsta ári. Bænir um
hjálp til flutnings vestur voru nú farnar aö koma frá
íslandi og- veitti íslendingafélagiö þeim viðtöku.
Áriö 1888' voru innflutningar miklir frá íslandi.
Taldist mönnu'm svo til, að það ár hefði komið á 13.
hundrað íslendingar til Kanada, að öllum þeim ótöld-
um, er til Bandaríkja fluttust. Harðæri allmikið var á
íslandi og Ameríku hugur mikill. Hraus mörgum
íhelztu mönnum jþjóðarinnar hugur við og ætluðu að
leiða mynli til landauðnar. Var þá oft af blöðunum til
þess óyndisúrræðis gripið, að nota hvert tækifæri, er
bauðst td að sýna fram á, hve hagur íslendinga væri
bágborinn hér vestur frá og að hér væri alt í opnum
daúða. Var þá oft vitnað í bréf einhverra, sem hér
voru óánægðir, höfðu ekki lag á að koma ár fyrir borð,
eða festu hér ekki yndd fyrir einhverra hluta sakir.
Stöku sinnum hurfu eldri menn heim aftur sökum ó-
jjreyju cg var það álitin óræk sönnun þess, að íslend-
ingum væri nokkurn veginn ólíft í Ameríku.
Winnipeg-blöðin gjörðu sér nú að skyldu að and-
æfa þessurn sögum af alefli og sýndu fram á., hve frá-
leitt það væri og óbróðurlegt að breiða út ósannar sagmr
af högum Vestur-íslendinga. Aldrei myndi heldur tak-
ast að stemma útflutningum stigu með því móti.
Um þessar mundir birtist flugrit gegn vesturförum
eftir skáldið Benedikt Gröndal og þótti það runnið af
sömu rótum. Var þá all-sterklega tekið í streng af
Winnipeg-blöðunum gegn þvi atferli. Og ekki var um
annað ofíar rætt með mönnum um þetta leyti. Mönn-
um fanst sem helztu menn fósturjarðar vorrar væri
með þessu áð kubba sundur tengslin, sem væri milli
fósturjarðarinnar og þess þjóðarbrots, sem vestur hefði
flutzt, og tóku sér það allnærri. Enda var vestan-blöð-