Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1907, Blaðsíða 111
ALMANAK 1907.
83
ii' voru jþá Heimskringlumenn; aörir héldu taum Lög-
bergs. Sumir voru fylgjendur frjálslynda flokksins í
stjómmálum, sumir íhaldsflokksins. Sumir voru safn-
aöarmenn, aðrir utansafnaöarmenn. Einkamál manna
munu eitthva'ð hafa til greina komið lika. Þegar tveir
menn ráku sömu sýslu, fanst báðum hinn vera í vegi og
átti næsta bágt með að vera honum eigi andvígur í öllu.
Svo er sagt, að einn maður liafi um þetta leyti viljalð
ganga í stúkuna og gjörast félagsmaður ("BergvinJ. En
er atkvæðagreiðsla fór fram með kúlum að vanda, var
þrem kúlum svörtum rent, en máttu eigi fleiri en tvær
vera, til þess eigi yrSi umsækjendur rækir. Æ'östi
templar átti nú að skera úr, hvort maður þessi væri nú
í tölu félagsmanna eða ekki. Hann hafði verið í stúk-
um á íslandi, þa,r sem kúlur máttu þrjár vera svartar og
kosning samt fullgi.kl. Eýsti hann nú yfir iþví, sam-
kvæmt því, er hann hafði vanist, að þessi maður hefði
hlotið kosning. Út af þessu reis mál, sem lagt var fyrir
stórstúku til úrskurðar. En er úrskur'öur kom frá æðsta
templar stórstúkunnar gegn kosning þessara manna,
klofnaði stúkan Hekla. Var mikið um það .rætt og þótti
stór-tíðindum sæta. Var það Heklugos nefnt og spunn-
ust margar sögur út af. Þetta var í ágústmánuði 1888
og voru töluverðar æsingar með mönnum út af gosinu,
eins og nærri má geta. Einstöku menn yfirgáfu þá
Good-Templara félagsskapinn og álitu að liann myndi
aklrei neinu til leiöar koma fyrir sundurlyndi og flokka-
drátt.
Revnsla hefir samt sýnt, að þeir höfðu ekki rétt
fyrir sér. Hnekkir allmikill varð þetta fyrir stúkuna
í bili og daprara varð á fundum, er svo margir af helztu
’rönnum sneru baki við henni. Allur þorri þeirra, er
eftir voru, hélt samt öruggur áfram, enda leið ekki á
löngu, áður stúlcan fór aftur a'ð rétta við og henni bætt-
ust nýir félagsmenn. En þótt æsingar nokkurar og ó-