Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1907, Blaðsíða 55
ALMANAK 1907.
27
lítils, norðaustur frá Toronto. Þar nam það flest staö-
ar í bili, þó sumiryrði eftir í Toronto og einstöku leituðu
suður og vestur til Bandaríkja.
Þarna í Kinmount var Sigtryggur um veturinn 1874
—'75. 1 félagi við innlendan mann einn b)-rjaði hann þar
verzlan. Eftir nokkurn tíma keypti hann hlut félaga síns
í verzlan þessari. Fekk þá Sigtryggur Friðjón Friðriks-
son, sem nú var kominn til Toronto, til að stýra verzlan
þessari fyrir sig, því sjálfur hafSi hann við mörgu aS snú-
ast.
I Kinmount hafSi þessi hópur íslendinga sezt aS, af
því þar var verið aS leggja járnbraut og atvinnu var þar
aS fá þess vegna, en lítiS mjög um aðra atvinnu í landi.
En ekki undu þeir því vel að verða að vinna daglauna-
vinnu og þráSu að geta fengið sér hentugt jarðnæði, þar
sem þeir gæti sett sig niSur og fariS aS búa. Um voriS
1875 skoSaði Sigtr)'ggur sig umígrendinni við Kinmount,
einkum í norðurátt; en land fanst honum þar hrjóstugt
og fremur óálitlegt til ábúðar. Lítið var líka um atvinnu
og framtíS léleg fyrir höndum.
All-margir álitu, að tiltækiiegast væri að hverfa aust-
ur að Atlantshafi og taka sér bólfestu í Nýja-Skotlandi,
enda hafði stjórn þess fylkis erindreka sinn meðal ís-
lendinga í Kinmount, en Sigtryggur réð þeim fastlega
frá því og sagði aS íslendingar myndi aldrei gjöra sig á-
nægða meS það land, er aSrir þjóðflokkar heíði gengiS
fram hjá. Réð þeim heldur til aS halda lengra vestur,
inn í óbvgð eða lítt bygð héruS. Fn þrátt fyrir mótmæli
hans tók allstór hópur sig upp frá Kinmount, fluttist
austur til Nýja-Skotlands og stofnaSi þar nýlendu. Fn
sú byggð hélzt að eins í nokkur ár. Þá tók hvert
mannsbarn í Nýja-Skotlands-bygðinni sig upp og fylgdi