Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1907, Blaðsíða 78
5°
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON :
sitt, ln aö sem þaö er. Þetta er gnllöld fyrir menn meö:
gáfur, jafnvel meðalgáfur, og eg vildi milclu heldur eig'a
undir því aö byrja nú baráttu fyrir lífinu vinalaus og pen-
ingalaus, en aö vera horfinn til baka þó ekki væri nema
20 ár. Heimurinn er alt af aö verða betri og' sterkari,hvöt-
in til að hugsa er að verða því nær ómótstæðileg í sér-
hverri grein af starfi mannanna. Þetta lyftir mannkyn-
inu hærra og hærra. Eftir því sem vísindin eru meira
notuð við iðnaðinn, þess hærra verður endurgjald gáfn-
anna, og þann dag í dag eru í þúsundum af verksmiðjum
upp&stungna-kassar, sem verkamenn eru beðnir að stinga í
miðum með nýjum hugmyndum árituðum, er þeir kunna
að hafa fengið við vinnu sína, — svo hungraðir eru þeir,
seni standa fyrir iðnaðar-stofn'unum,að færa þá menn upp,
sem hafa hæfileika til að bera“.
Edison leggur ef til vill nieira á sig en nokkur annar
maður,sem nú er uppi, enda er líkamsbygging hans sterk,
þrátt fyrir að hann er nær sextugur að aldri. Ef heilsa
hans hetði ekki látið það eftir að hann gat erfiðað í flmm
sólarhringa samfleytt, án svefns og næringarlítið, þá er
eins líklegt að hið svonefnda incandescent rafmagns-ljós
væri aðeins verkstofu-leikfang, í staðinn fyrir að vera not-
að til lýslngar um allan heim. Sama má segja um flest-
allar aðrar hinar miklu og merkilegu uppfundningar Edi-
sons, að þær eru ávöxtur af því nær ótrúlegu vinnuþreki.
— Edison er stór maður vexti, bringubreiður og nokkuð
feitlaginn. Hann er mjög sparneytinn,og þrífst ágætlega
á fæðu sem margur verkamaðurinn niundi álíta sultar-
fæðu. Höfuðið er stórt og svarar sér vel að öllu leyti.
Hárið er orðið stálgrátt, og því nær hvítt yflr hinu gáfu-
l£ga enni. Andlitið er breitt, sællegt og hrukkulaust, en
sérlega tilfinninganæmt, og græskulaus gamansemi skín
út úr því. Munnurinn er allstór, og þótt munnvikin sé