Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1907, Blaðsíða 76
48
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
Edisons, setn hann lVeíir fengið einkaleyfi á, eru yfir 400
að tölu. Hinar merkustu þeirra eru carbon-telefóninn,
fónógrafinn, rafmagns eldsbruna-kallið, loft-hljóðber-
inn, hljóðaukinn (megafon), hljóðmælirinn , raf-
magnspenninn, en einkum hin svonefnda quadruþléx
telegraf-aðferð, sam gjörir manni mögulegt að senda 4
skeyti í senn, eftir sama þræðinum, í gagnstæðar áttir án
hins minsta ruglings. Edison hefir í nokkur undanfarin
ár verið að fullkomna ódýrt rafmagns s/orage-batlery (vél
tii að geyma rafmagn í og nota sem hreyfiafl), og segja
síðustu fréttir að honum hafi tekist að fullkomna vélina
svo, að /no/or-vagnnr, er nú kosta 1200 doliara og yfir,
muni aðeins kosta 200 til 250 dollara. Hann hefir varið
fjarska miklum tíma og ógrynni fjár í að fullkomna þetta
storage-battery sitt, enda verður það vafalaust hin þýðing-
armesta og þarfasta uppfundning hans fram að þessum
tíma, því auk þess sem þetta battery vérður notað í motor-
vagna, þá verður það einnig notað í strætisvagna er renna
á stálteinum. Að storage-batteries hafa ekki hingað til
verið notuð í motor-va.gna. og strætisvagna kemur til af
því, að þau með gamla sniðinu hafa verið langtum of
þung og kostnaðarsöm í samanburði við afliö, er úr þeim
hefir féngist.
Enginn ameríkanskur maður er jafn víða þektur og
Edison, og enginn nú lifandi maður hefir lagt meiri skerf
til framfara mannkynsins. Biljónir dollara hafa - verið
lagðar í fyrirtæki, er hugvit hans hefir gert mögulegt að
koma í framkvæmd, og miljónir manna | haía alvirnu
við þessi fyrirtæki, sem útbreidd eru til endimarka jarðar-
innar. Svo nafntogaður er Edison, og svo örugt sæti á
hann meðal hinna fáu manna, er hafa breytt menningar-
ástandi heimsins án blóðsúthellinga, að maður nærri
gleymir því, að hann ekki er töframaður í æfintýri, heldur