Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1907, Blaðsíða 94
66
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON :
að eins til aö gjöra út af við Heimskringlu, og til þess
myndi líka sá leikur gjör.
Um. þetta leyti hætti mönnum ofmjög við að gjöra
livert nýtt fyrirtæki að flokksmáli og var þvi ekki furða
þótt stofnan nýs blaðs yrði það. Heimskringla hallaöi
sér þegar áð íhaldsstefnu í stjórnmálum og nú var taliö
öldungis víst, að nýtt blað myndi styðja frjálslynda
flokkinn.
í desembermánuði 1887 birtist boðsbréf að iiýju
blaði undirritað af sex mönrium. Tilkyntu jþ,eir þar
löndum sinum, að þ.eir hefði gengið í félag til að koma
prentsmiðju á fót í Winnipeg. Segjast þeir þá. !þeg,ar
hafa leigt hentugt húsnæði, sett upp hraðpressu og pant-
að letur, sem von sé á innan skamms tíma. Sé áform
þeirra það að gjöra prentsmiðju þlessa svo fullkomna
með tímanum, að í henni megi prenta hvað eina, sem
fyrir kemur á algengustu tungumálum. En einkum sé
hún i því skyni stofnuð, að hægt verði að prenta blöö,
bækur og rit á íslenzku, bæði áð tilhlutan félagsmanna
sjálfra og annarra, er eftir því kynni að sækjast.
Boösbréf þetta lýsir yfir því, að hið fyrsta, er fé-
lagið setli 'sér út að gefa, sé vikublað, er heita eigi
• Lögbc*rg. Á nafnið helzt að samsvara brezka blaðanafn-
inu algenga T'ribime. Eigi það að kosta tvo dáli hver
árgangur og verða fult eins stórt og stærsta ísl. blaöiö,
er þegar hefir verið gefið út i Ameriku ('HeimskringlaJ.
Skuli það byrja út að koma fyrir árslok 1887.
Lýsir útgáfunefnd þessi ennfremur yfir því, að lnm
muni hvorki spara fé né tíma, til þess að blað þetta
veröi sem bezt úr garði gjört. Auk almennra frétta
eigi það að hafa meðferðis ritgjörðir um almenn m.á.l,
sér í lagi þau, er að einhverju leyti snerta íslendinga og
hag þeirra. A’ðal-augnamið með að gefa út blað sé
að leiðbeina í atvinnumálum, mentamálum og stjórn-
málum. Blaðið eigi að veröa óháð öllum flokkum, í