Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1907, Blaðsíða 15
ALMANAK 1907.
5,
Fyrsti lögsögumaður, Hrafu Hængsson, kosinn af
lögréttu 930.
Fyrsta kirkja er í ritam talin bvgð um 984, að Ási í
Hjaltadal, en það mun sanni nær, að Örlygur gamli hafi
reist kirkju að Esjubergi nálægt 100 árum áður.
Fyrstur íslenzkur biskup, ísleifur Gissursson, 1054.
Fyrstur fastur skóli á Hólum 1552.
Fyrstur íslenzkur rithöfundur, kunnur, og faðir ís-
lenzkrar sagnaritunar, Ari Þorgilsson, prestur, f. 1067, d.
1148.
Fyrsta Heklugos, er sögur fara af 1 104.
Fyrsta klaustur, reist á Þingeyrum, 1133.
Fyrsta nunnuklaustur, í Kirkjubæ í Vestur-Skafta-
fellssýslu 1186.
Fyrstur konungur yfir íslandi, Hákon Hákonarson
(konungur Norðmanna.) 1262—63.
Svarti dauði geisaði 1402.
Seinni plágan 1495.
Fyrsta prentsmiðja á Breiðabólsstað í Vesturhópi
um 1530.
Fyrstur prentari, Jón Matthíasson, sænskur prestur.
Fyrstur lúterskur biskup, Gissur Einarsson, 1539.
Fyrst prentað nýja testamentið, þýtt af Oddi lög-
manni Gottskálksyni, 1540.
Fyrstur fastur latínuskóli í Skálholti 1552.
Fyrsta ísl. sáímabók, sem til er, prentuð 1555.
Fyrst prentuð biblían, þýdd af Guðbrandi bisk. i 1584.
Spítali stofnaður fyrir holdsveikt fólk 1652.
Fyrsta galdrabrenna 1625 (hin síðasta 1690).
Prentsmiðjan flutt frá Hólum að Skálholti 1695, og
að Hólurn aftur 1703.
Stórabóla geysaði 1707.
Fyrsta Jónsbók (Vídalíns) kemur út 1718.
Fyrst drukkið brennivín á íslandi á 17. öld.
Fyrst fluttur fjárkláði til íslands 1760.
Fyrst drukkið kaffi 1772.
Fyrsta lyfjabúð á Nesi við Seltjörn 1772.
Fyrstu póstgöngur hefjast 1776.
Hið íslenzka lærdómslistafélag stofnað í Kaupmanna-
höfn 1779.