Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1907, Blaðsíða 75
ALMANAK 1907.
47
ing'amaðu.r. En brátt var hann kartiaöur til Boston í
Massachusetts-ríki, því hann var orðinn kunnur sem einn
hinn allra-snjallasti telegrafisti í landinu. Þar setti hann
á stofn tilrauna-verkstofu, og þar fann hann upp hinn
svonefnda duplex 'tetégraf, vél, sem gerði mögulegft að
senda tvö skeyti í einu, sitt í hverja átVmeð sama þræðin-
um. Hann reyndi þessa nýju uppfundningu sína milli
Boston ogf Rochester í New York-ríki árið 1870, en til-
raunin mishepnaðist í það skifti, ogf kennir Edison það
klaufaskap telegrafistans við Rochester-endann á þræðin-
.um.
Þá gekk Edison í þjónustu hins svonefnda Gold Indi-
cator-félags í New York, ogf varð síðan ylirumsjónarmað-
ur telegráf-verkfæra þess. A meðan Edison var hjánefndu
félagi, fann hann upp ýmislegt nýtt og bætti eldri verk-
færi. Og um sömu mundir setti hann á stofn verksmiðju í
Newark, í New Jersev-ríki, til þess að sniíða hinar nýju
vélar sínar. Þar hafði ha'nn um 300 manns í þjónustu
sinni, og tók þetta starf upp svo mikinn tíma, að hann
:gekk úr þjónustu Gold Indicator-félagsins. Árið 1876
setti hann á stofn dálitla tilrauna-verkstofu í Menlo Park,
meðfram Pennsylvania-járnbrautinni, 24 mílur frá New
York-borg, og hefir þessi stofnun dafnað svo, að hún er
nú orðin allmikið þorp út af fyrir sig, og síðan byrjun árs-
ins 1879 hefir Menloe Park verið nokkurs konar Mecca
allra þeirra, er áhuga hafa haft fyrir að fullkomna raf-
magns-lýsingu sem allra mest. — Allar uppfundningar
Edisons eru praktiskar oggagnlegar til daglegs brúks, og
ná yfir ólíkustu svæði, t. d. frá motor þeim, er hreifir
saumavélar til microtasimeter hans, er mælir hinar allra
minstu og annars ómerkjanlegu breytingar hita og kulda,
°gf notaður hefir verið til að rannsaka ljós-hringinn,
sem er í kringum sólina og stjörnurnar. Uppfundningar