Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1917, Síða 9
ALMANAK 1917
5
Litur loftsins um sólsetur.
Þegfar himininn er gráleitur og myrkur um sólsetur, eða sláiir.
hann grænum eða gul-grænum lit, er regn í vændum. Rautt sóla-a
lag með skýjum, er verða myrkari, þegar fram á nóttina líður boðar
einnig regn.
Baugur um sólina.
Með baug um sólina meinum vér hina stóru hringi, eða hring-
parta, er liggja um sólina. Þegar baugur sést um sólina eftir gott
veður, má búast við regni.
Kóróna.
Með kórónu meinum vér smáa hringi, er sjást oft um sólina eða
tunglið. Þegar kórónan fer minkandi, bendir það á regn, stækki
hún, er fagurt veður í vændum.
Regnbogar.
Regnbogi að morgni dags er álitinn boða regn ; regnbogi að
kveldi, fagurt veður.
Litur himinsins.
Þegar þykkur, djúpur blámi sést á himninum, jafnvel þótt hann
sjáist gegnum skýjað loft, boðar það fagurt veður; verði bláminn
ljósari (hvítari), er stormur í nánd.
Þoka.
Þokur benda á staðviðri. Morgunþoka er vanalega horfin um
hádcgi.
kafheiður himinn.
Þegar gufuhvolfið er óvanalega skírt, og mjög stjörnubert er
og þær sýnast eins og deplar, er regn í vændum.
Skýin.
Þegar vér athugum skýin, gefum vér gætur að, hvers konar
ský það eru, hvernig þau hreyfast og hvernig þau eru í lögun. Ský
þau, er menn oft nefna ,,hestatögl“ köllum vér þráðaský (Cirri).
Einkenni þeirra er, að þau sýnast eins og þunnur vefur, er hangir
lauslega saman eins og tagl á hesti, eða þau sýnast fléttuð saman
eins og hin fjarlægu ský, er mynda sólarhringina. Litlar, reglu-
lega myndaðar þyrpingar af skýum þessum sjást oft fyrir stöðugu
blíðviðri. En þráða-ský eru líka stundum fyrirboði storms. Þegar
þau boða storm, eru þau vanalaga þéttari (fleiri) og hliðar þeirra
skörðóttar, og þá verða þau oftast að hvítleitum, löngum skýbakka.
Ský þau er alrnent eru kölluð ,,baðmullar-sekkir“, eða “þrumuhöí-
uð ‘, köllum vér skýja-þyrping (Cumulus). Þegar þau sjást um
heitasta tíma dagsins, en hverfa með kvöldinu, er framhaldandi
blíðviðri í vændum. Þegar þau aukast skyndilega, síga hægt niður
í gufuhvolfið, og hverfa ekki undir kvöldið, mun brátt von á regnt
Þegar sérstök smáský virðast eins og slitna frá þeim, má búast via
skúrum. Ský þau er sjást vanalegast eftir miðnætti, sýnast liggjð
marflöt og taka yfir mikið svæði, boða fagurt veður. Lítil svör,
vindaský eru fyrirboði regns.
Loftþyngdarmælir.
Þegar vér notum loftþyngdarmæli, er áríðandi að gefa gætur að