Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1922, Page 107
ALMANAK.
93
Hvers vegna giftist fólk?
Eitt af því sem enginn, hvorki macJur né kona, getur
gjört skynsamlega grein fyrir er það, hvers vegna hann
eða hún leggur ástarhug á eina sérstaka konu eða mann
meðal allra sinna vina og kunningja. Emerson líkti sam-
hygð meðal manna við hinn undursamlega og óskiljan-
lega samdrátt efnanna. Þegar um sanna ást er að raeða,
er aðdráttaraflið milli elskendanna ómótstæðilegt og það
er hið eina sem þeim er Ijóst. “Eg veit það eitt að eg
ann þér heitt, og einskis um þig spyr , eru orð, sem
hver sá sem elskar getur tileinkað sér.
Prófessor Walter M. Gallichan segir í bók sinni um
sálarfræði hjónabandsins, að engin innskoðun geti leitt í
ljós, hvað ástin sé. Schopenhauer, sem var nafnkendur
heimspekingur, hélt byí fram, að líkamlegar orsakir
lægju til grundvallar fyrir ástinni milli karls og konu.
Það, að líkindum er að nokkru leyti satt, b>ótt óafvitandi
sé ; en á meðal mentaðra þjóða að minsta kosti er ástin
að miklu leyti andlegs eðlis og oft mjög margbrotin.
Eftir því sem mannfélagið fjarlægist meir sitt upp-
runalega, náttúrlega ástand, verða mögulegleikarnir fyrir
algjörlega náttúrlegu vali færri. Hrein, óblandin ást er
engan vegin algengasta orsökin til hjónabands ; bað eru
margar aðrar orsakir, sem knýja bæði menn og konur
nú á tímum til að giftast.
Tilgangurinn er ekki sá sami hjá karlmönnum og
kvenmönnum. Konur, sem vilja komast hátt 1 heimin-
um og nenna ekki að vinna, krækja sér oft í auðuga
menn, án þess að þær séu ástfangnar af þeim. Og ó-
fríðar konur, sem ekki hafa getað náð í þá, sem þær
hefðu helzt kosið, giftast oft út úr hreinni örvæntingu
hverjum sem þær geta náð í, þegar þær sjá, að ekki er
eftir neinu betra að bíða. Sumar ungar stúlkur giftast af
æfintýralöngun og nýungagirni þeim fyrsta sem býðst, sé
hann annars ekki alveg óhæfur. Hjá öðrum aftur er
sterk móðernisþrá, sem knýr þœr til að giftast án veru-
legrar ástar.