Alþýðublað Hafnarfjarðar - 18.12.1964, Blaðsíða 9
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
9
Gísli Sigurgeirsson:
Fríkirkjan í
Hafnarfirði
Gísli Sigurgeirsson.
50 ára
14. des.
1965
.
Séra Kristinn Stefánsson fyrir altari kirkju sinnar
Fríkirkjusöfnuðurinn í Hafnarfirði var stofn-
aður 20. apríl 1913, að nýafstöðnum prests-
kosningum í Garðaprestakalli. Að stofnun safn-
aðarins stóðu um 100 kjósendur.
Stofnfundurinn var haldinn í Góðtemplara-
húsinu og fór þar fram fyrsta guðsþjónusta
safnaðarins, á sumardaginn fyrsta. Prestur var
ráðinn séra Olafur Olafsson, þáverandi frí-
hirkjuprestur í Reykjavík. Var séra Ólafur við-
orkenndur mælskumaður og einn af merkustu
klerkum prestastéttarinnar á sinni tíð.
Fyrstu safnaðarstjórn skipuðu þessir menn:
Jóhannes J. Reykdal verksmiðjueigandi og
var lrann formaður nefndarinnar, en aðrir í
stjórninni voru: Jón Þórðarson frá Hliði, Odd-
Ur ívarsson síðar póstmeistari, Egill Eyjólfs-
son skósmiður og Davíð Kristjánsson trésmíða-
meistari.
A fyrstu fundum safnaðarstjórnarinnar var
rætt um að byggja kirkju fyrir söfnuðinn, og á
stjórnarfundi þ. 15. ágúst er skýrt frá því, að
valinn hafi verið staður fyrir væntanlega kirkju
á fögrum stað við Linnetsstíg, og þá liggur
fyrir tilboð frá hf. Dvergur, þar sem boðizt
er til að byggja kirkjuna fyrir kr. 7.900.00 og
var það tilboð samþykkt. Var þegar hafizt
handa um að byggja grunninn og síðan kirkj-
una, og er ekki að orðlengja það, að kirkjan
er tilbúin snemma í desember, og fer vígsla
hennar fram sunnudaginn 14. des. 1913.
Eru því 50 ár liðin, síðan kirkjan á hólnum
við Linnetsstíg var byggð. — Verður afmælis-
ins minnzt á vígsludeginum 14. des., sem nú
ber upp á laugardag, með samsæti í Alþýðu-
húsinu í Hafnarfirði, en hátíðaguðsþjónusta
verður í kirkjunni sunnudaginn 15.. des.
Það þótti talsvert merkilegur viðburður í
okkar litla bæ, þegar kirkjuklukkurnar hljóm-
uðu í fyrsta sinni í Hafnarfirði og kölluðu
menn til tíða, en Hafnfirðingar höfðu um aldir
orðið að sækja kirkju að Görðum á Álftanesi
og fram að síðustu aldamótum um ógreiðfæra
götutroðninga.
Veður var ágætt á vígsludaginn, og löngu
áður en að kirkjan var opnuð, fór fólk að
streyma til hennar, og fylltist kirkjan þegar
svo, að hvert rúm var skipað út úr dyrum, og
mér var tjáð, að út úr henni hafi verið talið
og það reynzt 7—800 manns.
Söngflokkur fjölmennur hafði verið æfður
fyrir messuna og stjórnaði honum og lék á
orgelið Friðrik Bjarnason tónskáld, en hann
var organisti kirkjunnar fyrsta árið. Jón Þórð-
arson frá Hliði var meðhjálpari og las kór-
bæn, en séra Ólafur Ólafsson flutti prédikun
og vígði kirkjuna. Var þessi fyrsta kirkjuathöfn
mjög hátíðleg og eftirminnileg þeim, sem þar
voru staddir. Um kvöldið var svo haldið sam-
sæti í Góðtemplarahúsinu.
Söfnuðurinn var svo heppinn að njóta starfs
séra Ólafs Ólafssonar fyrstu 17 árin, en þá
varð hann að segja starfinu lausu sökum elli
og lasleika. Þá tók við prestsþjónustu í söfn-
uðinum ungur og glæsilegur guðfræðingur, Jón
Auðuns frá Isafirði, sem er þjóðkunnur
klerkur og er nú dómprófastur í Reykjavíkur-
prófastsdæmi og þjónar dómkirkjusöfnuðinum
í Reykjavík. Hann var prestur fríkirkjunnar
í 16 ár. Þriðji prestur safnaðarins er núverandi
prestur, séra Kristinn Stefánsson. Hann er
mikill gáfu- og mælskumaður og er þjóðkunn-
ur maður fyrir störf sín að málefnum Góð-
templarareglunnar á Islandi, og er nú áfengis-
isvarnaráðunautar ríkisstjórnarinnar.
Hann hefur þjónað þessum söfnuði í rúm
17 ár og gert það með mikilli prýði.
Hefur söfnuðurinn verið heppinn að fá
hvern ágætis-prestinn eftir annan í þessi 50
ár, sem söfnuðurinn hefur starfað.
Stjórn Kvenfélags
fríkirkjusafnaðarins.
Efri röð: Margrét Jóns-
dóttir, Steiney Krist-
mundsdóttir og Guðrún
Helgadóttir. Fremri röS:
Sigríður Eyjólfsdóttir,
Mattliildur Sigurðardóttir
formaður og Laufey
Guðmundsdóttir.