Alþýðublað Hafnarfjarðar - 18.12.1964, Blaðsíða 15

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 18.12.1964, Blaðsíða 15
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR 15 „Plöntum, vökvum rein við rein, rœktin skapar framann" Jólablað Álþýðublaðs Hafnarfjarðar hafði áhuga á að kynna að þessu sinni Skógræktarfélag Hafnarfjarðar og heimsótti því forrnann félagsins, séra Garðar Þorsteinsson, prófast, og lagði fyrir hann ýmsar spurningar um skógræktarstaifið. Séra Garðar leysti greiðlega úr öllum spurningum um skógræktina í Hafnar- firði, og gefum við honum hér með orðið. Skógræktarfélag Hafnarfjarðar var stofnað hinn 25. október 1946. Það ár var Skógræktarfélagi íslands breytt í samband héraðsskógrækt- arfélaga og sérstakt skógræktarfé- lag stofnað hér. Fyrsta stjórn fé- lagsins skipuðu þessir menn: Ingv- ar heitinn Gunnarsson kennari, sein var formaður, Jón Magnússon frá Skuld, Jón Gestur Vigfússon, sparisjóðsgjaldkeri, Gunnlaugur heitinn Kristinsson, kennari og sandgræðslustjóri, og Þorvaldur heitinn Arnason skattstjóri. Fjórir menn hafa fram að þessu gegnt formannsstörfum í félaginu: Ingvar Gunnarsson 1946—’49, Þor- valdur Árnason 1949—’54, Jón Gestur Vigfússon 1954—’58 og sr. Garðar Þorsteinsson frá 1958 til þessa dags. Árið 1935 var komið upp svo- nefndri Skólagirðingu í Undirhlíð- um, um 12 ha. svæði innan henn- ar. Börn úr efsta bekk barnaskól- ans önnuðust þar gróðursetningu fyrir forgöngu þeirra Ingvars Gunnarssonar kennara, Hákonar Helgasonar kennara og Guðjóns Guðjónssonar skólastjóra. Aðal- gróðursetningin fór þar fram á ár- unum 1937—1939. Árangurinn af þessu skógræktarstarfi hefur orðið mjög góður. Hæstu sitkagrenin eru nú 5 til 7 m há. Á þessum tíma hefur landið batnað stórlega og hefur þetta komið skýrt í ljós: I fyrsta lagi, að víða þarf ekkert að gera til að hefta uppblástur annað en girða landið, og í öðru lagi hefur orðið þarna stórfelld gróðurfarsbreyting. Til dæmis er svæðið innan girðingar blátt af blágresi fyrri hluta sumars, en ut- an girðingar er ekki blágresi að sjá. Blágresið hefur djúpar rætur og hjálpar mjög til við að bæta jarðveginn. Þetta sama er einnig að koma í ljós í öðrum girðingum skógræktarinnar. Skólagirðingin gekk fljótt úr sér og var ekki gripheld í mörg ár. Þá fór þessi trjágróður ákaflega illa og furðulegt, að hann skyldi ná sér aftur svo sem raun ber vitni. Árið 1952 samdist svo milli bæjar- stjórnarinnar og Skógræktarfélags- ins, að félagið tæki við þessari girðingu og sæi um hana framveg- is. Skógræktarfélag Hafnarfjarðar lét setja nýja girðingu þarna 1955. Þessi girðing segir bezt til þess, hvers vænta má. Bendir allt til, að trén þarna geti orðið allt að 20 m há. Skólabörnin unnu líka að gróð- ursetningu í Sléttuhlíð, en svæðið, sem þau gróðursettu í þar, var síðar úthlutað undir sumarbústaði. Ári eftir stofnun Skógræktarfé- lags Hafnarfjarðar fær félagið land frá Hafnarfjarðarbæ í Grá- helluhrauni. Var það 8 ha. á stærð. Strax var hafizt handa, svæðið girt og gróðursetning hafin. Árið 1949 er svo Gráhelluhraunsgirðingin stækkuð um 30 ha og er hún því nú 38 ha. að stærð. Árið 1957 fær Skógræktarfélag- ið 35,2 ha. land við Hvaleyrarvatn Gleðileg jól! Gott og farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin. BLÓMASKÁLINN v/Nýbýlaveg í Gráhelluhrauni. og er það girt sama ár. Ári síðar, 1958, er stóra girðingin gerð í Stóraskógarhvammi í Undirhlíð- um, en innan hennar er 67 ha. svæði. I Stóraskógarhvammi eru síðustu leifarnar af hinum víðáttu- mikla birkiskógi, sem upphaflega klæddi allar Undirhlíðar. Þegar girt var, voru þar um 4 m háar birkihríslur á nokkrum stöðum og samfellt birkikjarr á stóru svæði. Nú er gert ráð fyrir því, að á þeim hluta landsins verði eingöngu ræktaður birkiskógur og gamli birkiskógurinn þannig endurnýj- aður. Loks var árið 1961 þriðja svæð- >ið girt í Undirhlíðum. Það svæði er 60 ha og nær frá Skólagirðing- unni og norður undir Kaldá. Höf- uðáhugamál félagsins hefur und- anfarin ár beinzt að því að girða sem mest, til þess að bjarga land- inu frá eyðileggingu ofbeitar. Af- girt land Skógræktarfélags Hafn- arfjarðar nú er 212 ha. Samanlögð lengd girðinga félagsins er 14M km. I dag mundi það kosta 700 þúsund krónur að koma þessum girðingum upp. Búið er að gróðursetja í 43,8 ha. af þessu landi félagsins. Þegar Skólagirðingin er frátalin, hefur verið plantað í þetta rúmlega 200.000 trjáplöntum. Mestur hluti þessara plantna er barrviður, svo íem sitkagreni, blágreni, brodd- greni, rauðgreni, sitkabastarður, hvítgreni, skógarfura, bergfura, stafafura og lerki. Þá hefur verið plantað allmiklu af birki og verð- ur það gert lilutfallslega meira síð- ar. Einnig hefur verið plantað út lítið eitt af öðrum trjátegundum. Allmikið af þessu starfi hefur verið unnið í sjálfboðavinnu, eink- um fyrstu árin. En síðustu átta ár- in hefur félagið haft einn fastan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.