Alþýðublað Hafnarfjarðar - 18.12.1964, Blaðsíða 29

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 18.12.1964, Blaðsíða 29
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR 29 Listagjörður lofar dyggð, — leikur hjörð í túni braga, Hafnarfjörður, hlýleg byggð hleður vörður óðs og laga. E. J. E. Þegar ég kom fyrst á fund, fannst mér voða gaman. Fólkið var svo létt í lund, það ljómaði í framan. Hráfnhildur 12 ára. I ljóðum finn ég einatt yl, yndið fagra, sanna, Því vil kátur koma til kvæða- og ljóðamanna. B. Haustsins mugga hélugrá hótar vetri köldum. Við félagsstörfin fjöldinn þá fórnar mörgum kvöldum. Halla. Langt er orðið Iífsins sviðið, lýðum vil ég tjá. Attatíu og eitt er liðið árið bráðum hjá. Sig. Mag. vex á Það er oft glatt á hjalla hjá þeim Kvæðafé- lagsmönnum og þegar þeir eru ekki að kveða þá geta þeir brugðið sér upp á leiksviðið, eins og mynd þessi ber með sér. Þegar heilsar haustsól fríð hjúpuð skýjatárum, hún er eins og brosi blíð brá und gráum hárum. Jóhanna. Sólin bjarta signir jörð, sérhvert hjarta gleður. Bjargið hart við bláan fjörð báran vart nú treður. Kristján. Raunir féhirðis. Innheimtuna ofar set öllum mínum þrautum. Fyrirgefið fáum get félagsskuldunautum. Gjaldkeri. Upp þá vísu Eyfjörð dró af áheyrendum knúinn. kvaðst hann vera alveg ó- undir þetta búinn M. J. Á leið til fundar. Þó að annir ýmsum hjá yndi banni stundum, kætin sanna kviknar á kvæðamannafundum B. E. Eftir árshátíð Svo endaði allt með drykkju og dans dömum hjá og herrafans. Stjórnaði Jens með gleðiglans gömlum polka og Ola skans. Sigurunn. Um þrítugs afmæli félagsinls. Minningin er góð og glæst, gekk hér allt með prýði. Þá er lokið því sem næst þrjátíu ára stríði. Jón Vídalín. Meður hægð fram Magnús dró mærð í fáum línum. Bókasafnið bar liann þó í buxnavasa sínum. S. Um félaga. Gildur halur hreyfir sálm. Hér er dvalarfriður. Ekki er falur fyrir málm fagurgalasmiður. Kj. Hj. Heimsókn Iðunnar. Iðunnar var artin stór og andans kostur góður. Nú til Hafnarfjarðar fór að finna litla bróður. J. H. Efst á baugi. Lendaruggið lagar kropp og liðkar hann til muna, þótt menn kalli Húla-hopp hringavitleysuna. J. II. Á síðasta vorfundi. Vondri linnir vetrarraust, vorið spáir hlýju. Sjáumst aftur heil í haust og hefjum fundi að nýju. K. E. G. Á fyrsta haustfundi. Aukum fagran yndishag, éflið starfið betur. Ferskeytlunnar ljúfa lag látum hljóma í vetur. H. J. Allgóð fundarsókn. Kynslóðirnar öld af öld undu í Bragalundi. Tveir á fjórða tug í kvöld töldust hér á fundi. J. H. Ritarinn dró fyrir glugga. Ymsir nefndu andskotann, aðrir báðu griða, er rann hér yfir ritarann rúllutjaldaskriða. B. E. Til Svövu. Á „landsé“-fundmn liðug ertu. Liggur margt til bótanna. Margir segja, að mikið sértu menntuð vel til fótanna. H. J. Einnig þessi. I mér gerjar ástarþrá, andans þyngsta byrði, frá því að ég Svövu sá suður í Hafnarfirði. G. I. Um félaga Kristj’án. Ilagyrðingur hófst með glingur, hvergi stingur náungann, orkuslyngur fram í fingur frumort syngur ljóðin hann. Konráð. Á fundi. Gleðja margir okkar önd, ýmsir kveða hljóta. Fjórar prjóna fimri hönd fundar meðan njóta. B. Nýj’a eyj'an. Fráleitt verður fréttin rengd, fólkið hjá sér letrar, Eyjan nýja er á lengd átta hundrað metrar. Konráð. Leikur vart á tungum tveim, — tál þótt margan hrelli — meðan stöku hyllum hreim, heldur tungan velli. í. S. Félag öðlist framtíð bjarta. Fyllið salinn Ijóða dug. Alls hins bezta af öllu lijarta óska ég því af ráðnum hug. Sig. M. Hvorki kann ég hemja nú í huga mínum rímorð góð né styrka stuðla, en streitist við og blöðin kuðla. R. G. Ýmsar myndir má hér sjá, máluð ein er svona: Svörtum fjöðrum sveif hér á sviflétt Stjána kona. S. B. Gangi allir sorg á svig sálina til að fægja. Eg vil láta leigja þig, Lóa, til að lilæja. K. Eg það tjái utan gríns: aura hriktir vígið: Þegar krefst ég kaupsins míns kemur pólitíið. M. ■£k ?:''n \'~S'-- . v i ’/ Bágt eiga ekki bæj'armenn þó blotni fjörusteinar, enda halda í hönd þeim enn hýrir jólasveinar. Sástu skáld og skýjaglóp skálma leiðir beinar? Eru líka í okkar hóp ekta jólasveinar. Kj. Hj.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.