Alþýðublað Hafnarfjarðar - 18.12.1964, Síða 11

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 18.12.1964, Síða 11
ALÞYÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR 11 Fríkirkjan reist. minnzt látinna vina og vandamanna, og fært honum minningargjafir. Það bafa margir orðið til þess að leggja hönd á plóginn til þess að viðhalda starfi frí- kirkjusafnaðarins á þessum liðnu árum, og væri gaman að geta nafna margra þeirra, bæði karla og kvenna, en þess er ekki kostur hér. En þó vil ég ekki ljúka svo þessum línum, að eg minnist ekki tveggja manna, er mjög hafa komið þar við sögu. Jón Þórðarson frá Hliði tók við formennsku safnaðarstjórnarinnar á öðru starfsári safnaðarins og gegndi því starfi a meðan heilsa og kraftar leyfðu, og svo var hann meðhjálpari og umsjónarmaður kirkjunn- ar allt til þess að kraftar hans biluðu. Hann unni mjög þessari kirkju og fórnaði kröftum sínuin fyrir hana. Stjórn Bræðrafélagsins: Benedikt Sveinsson, Þárður Þórðarson og Jón Hjörtur Jónsson. Hinn maðurinn er Guðmundur Einarsson trésmíðameistari. Hann var einn af stofnend- um safnaðarins og hefur komið mjög við sögu þar. Hann var einn af þeim, er beittu sér fyrir byggingu kirkjunnar í upphafi, og það hafa engar breytingar farið fram á kirkjunni síðan, svo að hann hafi ekki verið með í ráðum og lagt þar liönd á plóginn og tekið lítið gjald fyrir. Þessum félögum, svo og öllum, er lagt hafa lið til eflingar og til að hæta og prýða kirkjuna á liðnum árum, eru færðar þakkir á þessum merku tímamótum. í kirkjunni starf- ar nú 16 manna blandaður kór, og er organisti frú Marín Gísladóttir Neumann. Færðu kór- félagar kirkjunni á sl. ári kyrtla að gjöf, sem söngfólkið klæðist við allar kirkjulegar at- hafnir. Meðhjálpari er Kristinn J. Magnússon mál- arameistari, og er hann einnig umsjónarmaður kirkjunnar. Safnaðarstjórnina skipa nú: Guðjón Magn- ússon skósmiðameistari og er hann formaður safnaðarstjórnar og hefur verið sl. 25 ár. Aðrir í stjórn eru: Jón Sigurgeirsson fulltrúi, gjald- keri, Gísli Sigurgeirsson heilbrigðisfulltrúi, rit- ari, Jónas Sveinsson forstjóri, varaformaður, og Guðjón Jónsson kaupmaður varagjaldkeri. Hálf öld er liðin, síðan klukkur þessarar kirkju kölluðu menn og konur til tíða í fyrsta sinn. Þær kalla ennþá unga og gamla til húss Drottins og gera framvegis um ókomin ár. Jólahátíðin fer í hönd. Fríkirkjusöfnuðurinn býður öllurri Hafnfirð- ingum gleðileg jól og gott og farsælt nýtt ár. Ritað í byrjun desember 1963. G. S. Gleðíleg jól! Gleðileg jól! Gott oq tarsælt Gott oq íarsælt komandi ár komandi ár Þökkum viðskiptin Þökkum viðskiptin á liðna árínu á liðna árinu Landleiöir LÝSI & MJOL H.F.

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.