Alþýðublað Hafnarfjarðar - 18.12.1964, Page 24

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 18.12.1964, Page 24
24 ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR r* -7 Vífilsstaðir í byggingu Tæpum þrjátíu árum eftir að saga þessi gerðist, eða fijrir liðlega hálfri öld, var hælið á Vífilsstöðum hijggt. Myndin sýn- ir liælið í hyggingu og allstóran lióp þeirra, sem við það unnu. hitt fólkið. En í Hagakoti — litlu býli milli Hofstaða og Vífilsstaða, sem nú er eyði — sneri hún aftur, þegar hún sá tvo þekktustu menn hreppsins koma ríðandi og stefna til Vífilsstaða. Voru það þeir séra Þórarinn Böðvarsson í Görðum og Magnús Brynjólfsson hreppstjóri á Dysjum (langafi Guðmanns hrepp- stjóra, sem nú býr þar). Þótti nú móður minni allt benda til, að slys hefði orðið. Litlu síðar er komið heim með líkið, og þá koma þau einnig, Sveinn og amma. Ingibjörgu varð svo mikið um þetta, að heita mátti, að hún missti vitið. Eitt sinn á meðan Guðrún lá á líkbörunum, kom móðir mín út og —-------—--------—-----------j ætlaði í fjósið. Sýndist henni þá Guðrún koma heim túnið og fara inn í fjósið og vera eins klædd og þegar hún drukknaði. Mömmu brá dálítið og þótti fyrir því að þurfa að fara á eftir henni inn í fjósið, en ekki var um annað að ræða. Hugsaði mamma líka sem svo, að Guðrún, sem var bezta vinstúlka hennar, gæti eins vel komið til að hugga hana sem hræða. Það sagði móðir mín oft síðar, að þetta hefðu verið þau dapurlegustu jól, sem hún hefði lifað. Guðrún dáin, Ingi- bjorg næstum brjáluð og Sveinn hálfsturlaður líka, talaði helzt ekki orð, nema ef hann tautaði ofan í barm sinn, að hann hefði þurft að fara líka, eða eitthveð því um líkt. Ofan á allt þetta bættust svo veikindi, því að um vorið geisuðu mannskæðir mislingar. Lagðist þá allt fólkið á Vífilsstöðum nema amma mín. Hafði hún þá nóg að starfa, bæði að sinna sjúklingum og skepnum. Framkoma þeirra hjónanna gagnvart móður minni var ólík, einkum eftir dótturmissinn. Var sem Ingibjörg byndi meiri tryggð og vináttu við hana eftir en áður. en með Svein var öðru máli að gegna. Þegar hún var að byrja að in af honum ölvíman. Kemur þeim saman um að fara heim að Arnar- nesi og reyna að fá þar mannhjálp til að leita að stúlkunni. Þegar þangað kemur, neitar bóndinn þar að fara, segir, að stúlkan sé dáin hvort sem er og þýðingarlaust sé að fara að leita, fyrr en birti næsta morgun. Verður það úr, að þau Sveinn og amma mín eru þarna um nótt- ina. Strax í birtingu næsta morgun var farið að leita að Guðrúnu, og fannst hún fljótlega í læknum. Sent var niður að Görðum til að tilkynna prestinum látið. Um morguninn sendi Ingibjörg móður mína á næstu bæi til að vita, hvort hún yrði nokkurs vísari um Gleðileg jól! Gott og farsælt komandi ár Þökkum viðskiptin á liðna árinu Vélsmiðjan KLETTUR Hafnarfirði, Sími 50159 og 50539 Óskum öllum meðlimum vorum, bæði á sjó og í landi, gleðilegra jóla og góðs og farsæls komandi árs. Með pökk fyrir áirið sem er að líða. Verkamannafélagið Hlíf Sjómannafélag Hafnarfjarðar

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.