Alþýðublað Hafnarfjarðar - 18.12.1964, Síða 44
44
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
Bjarni minn — og fréttirnar, jafnt
þær fyrri sem þessar síðustu. . . .
Þú hefur þó vonandi ekki meitt
þig?“
„Meitt mig? Skárra væri það!
Nei, en gólfið, maddama
Helga!"
„Svona, svona, — farðu nú úr og
láttu þér svo hlýna í eldhúsinu.“
„Alltaf eins,“ tautaði Bjarni um
leið og hann dró sig fram úr gætt-
inni og lokaði á eftir sér.
Enn á ný varð þögn í stofunni,
enn á ný var hlustað. Og enn var
það Leifur litli, sem rauf þögnina.
Hann leit á föður sinn, sem stóð og
horfði og hlustaði, og síðan á móð-
urina, loks á Harald:
„Hann hefur þá gert það.“
Það var eins og Böðvar Þor-
valdsson leystist nú fyrst úr læð-
ingi ótta og örra skapbrigða. Yfir
hann var komin hin virðulega og
festulega ró, sem einkenndi dag-
lega framkomu hans. Hann kink-
aði kolli við Leifi litla, horfði síð-
an út um gluggann og sagði eins
og hann væri að tala um sjálf-
sagðan hlut og næstum hversdags-
legan:
„Já Leifur litli, hann hefur gert
það. Þær koma ekki héðan af, hvið-
ur eins og þessi áðan. Þetta er bú-
ið, — hann er að smádraga úr veðr-
inu, — hann skefur ekki einu sinni
að ráði úr báru hérna á Sundinu
— heldur ekki neitt, sem heitir,
úr brotinu á Flögunni."
Hann gekk til konu sinnar, sem
sat með sokkinn litla á kné sér og
laut höfði. Hún leit upp í andlit
bónda síns, og svo rétti hún fram
höndina — hann sína. Stutt, þétt
handtak. Síðan vék hann sér við og
leit á Harald son sinn.
„Komdu hérna, Haraldur litli,“
sagði hann rólega.
Drengurinn kom. Nei, hann fór
ekkert hjá sér, og það var enginn
merkis- eða hátíðasvipur á honum,
— hann var aðeins alvarlegur.
„Þakka þér fyrir, drengur minn,“
sagði faðirinn hlýlega, en þó ósköp
blátt áfram, og klappaði á kollinn
á syni sínum. „Nú er kútter Har-
aldi óhætt.“
Árin líða. Haraldur Böðvars-
son er orðinn 17 ára og hægri
hönd föður síns. Hann hefur
þá um nokkur ár séð um upp-
skipun fyrir föður sinn. Skuggi
sorgarinnar hefur sótt Akur-
nesinga heim. Ellefu manns,
flestir í blóma aldurs síns, hafa
drukknað af sexæringi á heim-
ieið frá Reykjavík. Og nú tekur
Hagalín aftur við frásögninni:
»3esús minn,
Haraldur . . .«
Daginn eftir var veðrið mun
verra, útsynningsrosi með krapa-
éljum og helliskúrum til skiptis. Og
nú var ekki aðeins vindbára, held-
ur brim.
Uppskipunarbáturinn var þung-
ur í sjó, ágjöfull og ærið erfiður
undir árum ,og veitti ekki af, að
sex menn reru, ef sækja þurfti á
móti, þótt ekki væri nema strekk-
ingsvindi. Hann var og illa fallinn
til að lenda honum í brimi, lyfti
sér lítt, þegar undir hann riðu
brattar brimöldur.
Bjarni Jóhannesson í Sýruparti
átti stærsta sexæringinn, sem til
var á Akranesi, þegar hér var kom-
ið. Sá bátur var léttur undir árum
og varði sig vel bæði á rúmsjó og
í brimlendingu. Þegar Reykjavík-
in kom, leizt Haraldi ekki á að
fara út að henni á uppskipunar-
bátnum, og þess vegna fór hann
heim til Bjarna Jóhannessonar og
bað hann að lána sér sexæringinn.
Þungt var yfir gamla manninum,
því að þeir voru bræður og mjög
í Húsgagnaverzlun Hafnarfjarðar
fáið þér
húsgögnin
sem yður vantar.
Hvergi stílhreinni né vandaðri
KOMIÐ, SJÁIÐ OG SANNFÆRIST
Húsgagnaverzlun Hafnarfjarðar
Nýju bœkurnar
Að þessu sinni gefur Bókuútgúfa Menningarsjóðs út eftirtaldar bœkur
1. Steingrímur Thorsteinsson, ævisaga, eftir Hannes Pétursson. Falleg og mjög
vel skrifuð bók, prýdd mörgum myndum. Um 300 blaðsíður í stóru broti. Hefur
verið sérstaklega til útgáfunnar vandað. Útsöluverð 350.00 kr., félagsverð 280.00 kr.
2. Rómaveldi, síðara bindi, eftir Will Durant, Jónas Kristjánsson cand. mag. þýddi.
Fyrra bindi þessa verks kom út á síðasta ári, og hlaut þá afbragðs góða dóma.
Félagsverð 170.00 kr.
3. Með huga og hamri, jarðfræðidagbækur Jakobs H. Líndals, bónda og jarð-
fræðings á Lækjamóti. Sigurður O?órarinsson sá um útgáfuna. Rúmar 400 blað-
síður, prýdd myndum. Utsöluverð 360.00 kr., félagsverð 285.00 kr.
4. Saga Maríumyndar, eftir dr. Selmu Jónsdóttur. Prýdd mörgum myndum. Upp-
lag er mjög lítið. Útsöluverð 350.00 kr., félagsverð 280.00 kr.
5. Sigtryggur Guðlaugsson á Núpi, ævisaga eftir Halldór Kristjánsson, Kirkju-
bóli. Útsöluverð 280.00 kr., félagsverð 170.00 kr.
6. í skugga Valsins, skáldsaga eftir Þórunni Elfu Magnúsdóttur. Útsöluverð 280.00
kr., félagsverð 170.00 kr.
7. örn Amarson, (Magnús Stefánsson, skáld), eftir Kristin Olafsson. Utsöluverð
140.00 kr., félagsverð 110.00 kr. /
8. Leiðin til skáldskapar, um sögur Gunnars Gunnarssonar, eftir Sigurjón Bjöms-
son. Útsöluverð 140.00 kr., félagsverð 110.00 kr.
9. Syndin og fleiri sögur, eftir Martin A. Hansen, Sigurður Guðmundsson þýddi.
Útsöluverð 140.00 kr., félagsverð 110.00 kr.
10. Mýs Og menn, eftir John Steinbeck, Ólafur Jóh. Sigurðsson þýddi. Útsöluverð
140.00 kr., félagsverð 110.00 kr.
11. Raddir morgunsins, ný ljóðabók eftir Gunnar Dal. 120 blaðsíður. Upplag er
lítið. Útsöluverð 180.00 kr., félagsverð 140.00 kr.
12. Ævintýraleikir, 3. hefti, eftir Ragnheiði Jónsdóttur. Útsöluverð 70.00 kr., félags-
verð 55.00 kr.
BÓKAMENN: Það borgar sig að gerast félagsmenn í Bókaútgáfu Menningarsjóðs og
njóta vildarkjara um bókaverð. — Sni'iið ijður til næsta umboðsmanns.
Bókaútgófa Menningarsjóðs