Alþýðublað Hafnarfjarðar - 18.12.1964, Síða 46

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 18.12.1964, Síða 46
46 ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR 38500 Aðalskrifstofur Samvinnutrygginga og Líftryggingafélagsins Andvöku hafa nú ver- ið fiuttar úr Sambandshúsinu við Sölfhólsgötu í nýtt hús við Ármúla 3. Ennfrem- ur hefur skrifstofa Sjódeildar verið flutt úr Bankastræti 7 á sama stað. Sam- vinnutryggingar hafa nú í 18 ár leitazt við að veita fullkomna tryggingaþjónustu, bæði með ýmsum nýjungum á sviði trygginga og með nútíma skrifstofutækni. Með bættum húsakynnum eiga Samvinnutryggingar hægar með en áður að veita nýjum og gömlum viðskiptavinum betri þjónustu og. bjóða þá velkomna í, Ármúla 3. SAJVIVIIVIVUTRYGGINGiVR anwaik& Vér bjóðum yður tryggingar með beztu fóanlegum kjörum Það er ótryggt að hafa ekki vótryggt Vátryggingafélagid h.f. Borgartún 1 - Sími 18200 - Reykjavík Hafnarfjarðarumboðið Strandgötu 29, (Sjálfstœðishúsinu) Sími 51940 Afgreiðslutími er frá kl. 17—19 alla virka daga, laugardaga kl. 11—12 og 13—15 Sjóvá- Skipa- Ferða- Flugvéla- Bifreiða- Farangurs- Jarðskjálfta- Rekstursstöðvunar- Innbrotsþjófnaðar- Vatnsskaða- Vinnuvéla- Abyrgðar- Heimilis- Bruna- Slysa- Líf- T R Y G G I N G A R seta sína og Akurnesinga, sem ver- ið höfðu farþegar. Aðeins þrír sinntu kallinu, og komu niður í bátinn, en hinir voru hvergi sjáan- legir. Þeir höfðu hlaupið í felur, þegar Haraldur kallaði. Mennirnir, sem hlýddu kalli Haralds, höfðu allir komið með honum úr landi. Hann skipaði nú einum þeirra að ausa, öðrum að gæta þess, að pokinn færi ekki úr gati botnþiljunnar, og þeim þriðja að hjálpa konunum upp. Hann ætl- aði sér og Einari að gæta þess, að báturinn væri hæfilega nærri skips- hliðinni, án þess að annað óhapp kæm' fyrir. Sá, sem falið var að hjálpa kvenfólkinu upp á skipið, var gætinn maður, laginn og burða- mikill. Hann tók undir handlegg- inn á einni konunni, en hún æpti hástöfum og fórnaði höndum, og datt þá sjalið hennar niður í aust- urinn. Maðurinn skipti sér ekki af því en greip í aðra. Það var stúlka um tvítugt. Hún lét hann styðja sig á fætur, án þess að sýna neina tregðu. Hann þokaði henni síðan út að borðstokknum og náði nú í annan kaðalendann, sem kvenfólk- ið hafði haft stuðning af, þegar því var hjálpað ofan í bátinn. Hann lét stúlkuna grípa um kaðalinn, og síðan lyfti hann henni upp á hástokk bátsins. Tveir af hásetun- um á Reykjavíkinni hölluðu sér fram á öldustokkinn, og þegar skipið tók hléveltu, gripu þeir í axlir stúlkunni innan undir sjal- inu og kipptu henni upp og inn á þiljur. Meðan hún sveif í loftinu, datt sjalið af herðum hennar og flögraði eins og dökkur, særður furðufugl ofan í austurinn. Þannig tókst að koma þremur stúlkum upp úr bátnum, en engri hinna kvenn- anna varð þokað um set. Þær hróp- uðu eða grétu og litu angistar- augum til Haralds: „O, almáttugur, Haraldur, ég þori ekki þetta!“ hrópaði ein. „Eg vil ekki missa sjalið mitt, nýkeypt kasmírssjal!“ kveinaði önn- ur. „Jesús minn, Haraldur, ég vil komast heim í eldhús til mannsins míns og barnanna minna!“ æpti sú þriðja. Haraldur hugði nú að pokanum og síðan að austrinum í bátnum. Austurinn hafði minnkað, en þó var auðsætt, að pokinn var ekki einhlítur til að koma í veg fyrir lekann. En samt ... samt átti að vera óhætt að halda til lands með kvenfólkið og sækja annan bát. Og Haraldur kallaði til Einars: „Eg er ekki að stríða við þetta. Nú köstum við lausu og ýtum frá.“ Hann leit á manninn, sem gætti pokans. „Þið Jón róið í hálsi, en ég tek þarna við.“ Hann beindi aug- unum að manninum, sem hjálpað hafði stúlkunum upp úr bátnum:

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.