Alþýðublað Hafnarfjarðar - 18.12.1964, Síða 47
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
47
„Nú færir þú kvenfólkið, sem sit-
ur á miðskipsþóftunni, aftur í aust-
urrúm, hvað sem það æpir. Þær
verða að gera sér að góðu að
setjast á súðina, þrjár hvorum meg-
in, og svo rærð þú miðskips á tvær
árar.“
Hraðhentur og fasthentur fram-
kvæmdi maðurinn skipunina, þrátt
fyrir óp og emjan kvennanna, sem
ýmist báðu fyrir sér eða sjölum sín-
um og kvörtuðu sáran undan því,
hvað mannhundurinn væri harð-
hentur. En hann lét sem ekkert
væri, og þegar hann hafði lokið
honum. Var ekki meira en svo,
að ræðurum gæfist tóm til að kom-
ast út úr, áður en báturinn væri
kominn það langt upp, að reknar
væru undir hann skorður, enda lét
Einar Ingja'ldsson sér nægja að
kippa frá honum stýrinu og inn-
byrða þáð, isat síðan rólegur í
skutnum.
Haraldi varð litið ofan í austur-
inn, þegar menn voru að skorða
bátinn. Þar flutu fimm eða sex
sjöl, og ekki gat Haraldur betur
séð en þar væru líka skotthúfu-
skúfar á floti. Þarna sá hann glóa á
tilfærslu kvennanna, settist hann x gullinn sjalprjón, og víst bar hann
rólegur á miðskipsþóftuna. Kven-
fólkið bylti sér til, hrópaði og
kvartaði undan því, að austurinn
bleytti það. Sumar konurnar höfðu
misst af sér sjölin, þegar þær voru
að streitast gegn aðferðum manns-
ins. sem flutti þær aftur í austur-
rúm, og nú fór eins fyrir sumum
hinna, þegar þær fundu sig vökna
og tóku að bylta sér til. Sumar
reyndu að standa upp, en Harald-
ur kallaði grimmdarlega til manns-
ins á miðskipsþóftunni:
„Nú fleygir þú þeim umsvifa-
laust í sjóinn, sem ekki sitja graf-
kyrrar.“
„Já, gerðu það bara, lielvítið
þitt, — því nú er ég búinn að missa
þetta dýra sjal, já, gerðu það bara,
•— hann Einar minn drepur þig á
eftir, og svo verðurðu settur í ævi-
langt tugthús!“
Ein af hinum konunum fór að
hlæja. Hún hló og hló og rann nið-
ur á botnþiljurnar, svo að hún lá
öll í austrinum, að undanskildum
herðum og höfði, en hún hélt
áfram að hlæja, nötraði af krampa-
kenndum hláturshryðjum.
Nú lánaðist vel að losna við skip-
ið, og síðan var róið fjórum árum
til lands og stefnt í Teigavör, því
að þar liafði báturinn staðið, og
lending var þar engu lakari en í
Steinsvör. Allar konurnar sátu ró-
legar og þögular nema sú, sem far-
ið hafði að hlæja. Hún engdist
sundur og saman í austrinum, ým-
ist af hláturssogum eða hóstaköst-
um. Þarna varð ekkert að gert, og
sú var þó bótin, að bátnum skilaði
óðum til lands, enda ýttu nú á eft-
ir honum gustur og gildar öldur.
Brátt var þangað komið, sem
bíða skyldi lags. Þá lét Haraldur
lekann lönd og leið, en færði sig
aftur á miðskipsþóftuna og tók þar
við annarri árinni. Honum þótti
öruggara, að fjórir reru brimróður-
inn, ef lagið skyldi reynast stutt
eða svikult. Og Einar Ingjaldsson,
sem sat við stjórn, kinkaði til hans
kolli.
Lendingin tókst með ágætum,
og ekki var hætt við, að neitt yrði
að, þá er báturinn hafði kennt
grunns, því að hópur karlmanna
stóð þess albúinn að taka á móti
kennsl á hinn nýkeypta kostagrip,
er kenndur var við furstadæmið
indverska, sem nú hefur um langt
skeið valdið skærum og mannfalli
meðal Indverja og jafnvel stund-
um stofnað heimsfriðinum í voða.
En ekki 'lá fyrst fyrir að bjarga
því, sem á floti var í austrinum,
heldur konunum, og til þess var
meira en nægur liðsafli. Þarna var
til dæmis kominn sá maður, sem
Haraldi hafði verið boðað, að
standa skýldi yfir höfuðssvörðum
hans. En meður því, að maður sá
var mun meinlausari en kona hans
vildi vera láta, sneri Haraldur sér
alls ósmeykur að öðru verkefni en
að láta fætur forða sér. Þarna
stóð sexróinn bátur, sem var
nokkru minni en sexæringur Bjarna
Jóhannessonar, en gæðafleyta.
Haraldur sá ekki eiganda hans í
hópnum í fjörunni, en samt ákvað
hann vöflulaust að taka bátinn
traustataki. Haraldur kom auga á
þrjá menn, sem þarna voru af upp-
haflegri áhöfn hans, og kallaði á
þá. Þeir komu til hans, en einn
þeirra sagði:
„Ég tek ekki í mál að fara með
þér aftur. Þú ert vís til að svífast
einskis.“
Haraldur hefur tamið sér frá
upphafi vega að hafa sem mesta
stjórn á skapi sínu, en að þessu
sinni gaf hann því lausan taum-
inn, enda var þetta sami maður-
inn og hafði með klaufaskap vald-
ið hinu háskalega óhappi — og
þegar maðurinn sneri sér snúðugt
við og hélt af stað frá Haraldi,
sparkaði hann það fast í bakhlut-
ann á honum, að hann hrökk á
hrammana.
Siðan vék Haraldur sér að hópn-
um og kallaði:
„Mig vantar fjóra menn!“
Einar Ingjáldsson svaraði:
„Það ætti ekki að vera hér neinn
skortur á mönnum. Mér þætti
betra að þurfa ekki að fara, því
að ég er nú að koma heim og er
í sparifötunum.“
„Ég skil það,“ sagði Haraldur,
„en ég ætla að biðja þig að skjóta
heim fyrir mig póstpokaskjattan-
um, sem liggur í stafnlokinu á sex-
æringnum. Ég veit þá„ að hann
kemst til skila.“
„Það ætti nú að vera velkomið,“
mælti Einar.
Fjórir menn tíndust út úr hópn-
um og komu til Haralds og félaga
hans. Svo var þá sexmannafarið
sett fram í flæðarmálið, en þar
kom hik á hina væntanlegu áhöfn.
Það hafði allt í einu brugðið
skugga á sjóinn, og þegar menn
litu til útsuðurs, gat þeim ekki
dulizt, að ein krapahryðjan var í
vændum. Um leið mundi hvessa,
þó ekki meira en svo, að vel yrði
fært út að skipinu, enda hafði
brimið ekki aukið — en hins vegar
urðu hvítir iðandi brotfaldar á
flúðunuin óhugnanlegri, þegar
skyggði að með él. Einn af mönn-
unum hristi höfuðið og sagði:
„Ég fer ekkert. Ég h,eld fólkið
geti farið aftur til Reykjavíkur.“
„Ég ekki heldur,“ sagði annar.
„Það er svo sem ekki eins og
líf liggi við að fara, gæti frekar
verið lífshætta að leggja út í þetta
í svona útliti,“ mælti sá þriðji.
„Nú, það er víst sjálfhætt við
ferðina,“ sagði svo fjórði maður-
inn.
„Nú skulum við setja upp bát-
inn,“ sagði Haraldur stuttlega.
Nú stóð ekki á skjótum við-
(Framhald á bls. 49)
Hofnfirdingor!
Hafið þér litið í sýningarglugga blómabúðarinnar BURKNA?
ÍEI?=, í Burkna eru jólagjafir handa allri fjölskyldunni.
í Burkna er allt handa ölhun. V
BSlr’ Látið Burkna leysa vandann.
HSlr’ í Burkna fáið þér jólagjöfina, sem þér leitið að, handa hús-
bóndanum og húsmóðurinni, leikföng í úrvali handa öllum
börnunum.
13^ í Burkna fáið þér ennfremur alls konar blómaskreytingar.
SSlr’ í Burkna er mjög fjölbreytt úrval af alls kyns blómum, af-
skornum blómum og pottablómum.
Prýðið heimili yðar með blómum frá B U R K N A
Sendum heim — Opið alla sunnudaga frá kl. 1—5 e. h.
SÍMAR 50941 OG 51941
4
BLOMABUÐIN BI
0) ■
jJEjJ
N I