Alþýðublað Hafnarfjarðar - 18.12.1964, Page 49
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
49
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
Útgefandi:
ALÞÝÐUFLOKKURINN í HAFNARFIRÐI
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
HÖRÐUR ZÓPHANÍASSON
Auglýsingar:
GUNNAR BJARNASON, SIGURÐUR EMILSSON
Afgreiðsla í Alþýðuhúsinu, sími 50499
PRENTSMIDJA HAFNARFJARÐAR HF.
KIRKJAN UM HÁTÍÐARNAR:
„Klukkna hljóð kallar þjóð"
HAFNARFJARÐAR-
Fréttabréf frá Almenna bókafélaginu
KIRKJA:
Aðfangadagur: Aftansöngur kl. 6.
Jóladagur: Messa kl. 2 e. h.
Þriðjudagur 29. des.: Jólasöngvar
kl. 8,30 e. h. Kirkjukórarnir
syngja jólasálma, Páll Kr. Páls-
son leikur jólalög, séra Garðar
Þorsteinsson les jólaguðspjöllin.
Gamlárskvöld: Aftansöngur kl. 6.
Nýársdagur: Messa kl. 2 e. h.
SÓLVANGUR:
Annar jóladagur: Messa kl. 1 e. h.
BESSASTAÐIR:
Jóladagur: Messa kl. 4 e. h.
Gamlárskvöld: Aftansöngur kl. 8.
barnaskólinn,
GARÐAHREPPI:
Aðfangadagskvöld: Aftansöngur
kl. 6 e. h. (Séra Bragi Friðriks-
son).
KÁLFATJÖRN:
Jóladagur: Messa kl. 11 f. h.
Nýársdagur: Messa kl. 4 e. h.
FRÍKIRKJAN:
Aðfangadagur: Aftansöngur kl. 6.
Jóladagur: Messa kl. 2 e. h.
Annar jóladagur: Barnaguðsþjón-
usta kl. 2 e. h.
Gamlársdagur: Aftansöngur kl. 6.
Nýársdagur: Messa kl. 2 e. h.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Aðfangadagur: Hámessa kl. 12 á
miðnætti.
Jóladagur: Hámessa kl. 10 f. h.
Bænahald kl. 6,30 e. h.
Annar jóladagur: Hámessa kl. 10
f. h.
Gamlárskvöld: Bænahald kl. 6,30
e. h.
Nýársdagur: Hámessa kl. 10 f. li.
í sumar komu út hjá AB stuttar
skáldsögur eftir erlenda öndvegis-
höfunda, Vaðlaklerkur, eftir Steen
Steensen Blicher, í þýðingu Gunn-
ars Gunnarssonar, og Ehrengard,
eftir Karen Blixen, í þýðingu
Kristjáns Karlssonar. Með þessum
bókum er hafin útgáfa á nýjum
flokki, sem í verða stuttar úrvals-
sögur erlendra höfunda.
Þá er komið að þeim bókum,
sem kalla mætti jólabækur AB.
Verður þá fyrst fyrir Jómfrú Þór-
dís, hin nýja skáldsaga Jóns
Björnssonar. Höfundurinn hefur
sótt efni bókarinnar í frægt saka-
mál frá öndverðri 17. öld, hinu
myrka tímabili hjátrúar og hind-
urvitna, þegar skuggi Stóradóms
og hins danska konungsvalds vofði
yfir landinu og forn og nýr átrún-
aður áttu í baráttu um sálir fólks-
ins. Allar fyrri skáldsögur Jóns
Björnssonar hafa selzt upp og má
mikið vera, ef hið sama verður
ekki upp á teningnum með Jómfrú
Þórdísi.
Þá er nýlega komið lokabindi
hins mikla ritverks Kristjáns Al-
bertssonar um Hannes Hafstein.
Þarf ekki að fara mörgum orðum
um þetta rit, því sennilega hafa
engar íslenzkar bækur vakið jafn-
mikla athygli eða leitt af sér ein-
dregnari viðbrögð, ýmist til andófs
eða hrifningar. Fyrsta bindið kom
út 1962 í 6000 eintaka upplagi, sem
allt seldist upp á tæpum þremur
vikum, og varð þá strax að prenta
viðbótarupplag, sem út kom í
fyrra. Af því bindi eru nú til innan
við þúsund eintök. Annað bindið
hefur einnig selzt mjög mikið, enda
þótt hin svokallaða jólasala færist
að mestu fyrir, vegna þess hve
lítið af upplaginu náðist þá úr
bandi af verkfallsástæðum, og nú,
eftir að lokabindið er komið út,
virðist síður en svo hafa dregið
úr áhuga almennings á þessu mikla
ritverki. Að sjálfsögðu mun enn
verða deilt um afstöðu höfundar-
ins gagnvart einstökum mönnum
og málefnum, en hitt orkar ekki
tvímælis, að aldrei fyrr hefur við-
burðaríkasta tímabili í sögu ís-
lands verið gerð ýtarlegri skil en
í þessari ævisögu Hannesar Haf-
steins, hins glæsilega skálds og
þjóðarleiðtoga.
Af öðrum ævisögum, sem komið
hafa út hjá AB^ má nefna Jón Þor-
Iáksson, eftir Sigurð Stefánsson
vígslubiskup, Sjálfsævisögu Hann-
esar Þorsteinssonar, æviminningar
Jóns Krabbe, Frá Eafnarstjóm til
lýðveldis, og Myndir og minningar
Ásgríms Jónssonar, skráðar af
Tómasi Guðmundssyni.
Að lokum má minna á það, að
um langt árabil hefur AB gefið út
fyrir hver jól litla og snotra bók,
venjulega um eitthvert þjóðlegt
efni og myndskreytta, sem það
sendir í jólagjöf þeim félagsmönn-
um sínum, er keypt hafa sex eða
fleiri af útgáfubókum þess á ár-
inu. Þessar bækur eru alls ekki til
sölu, og er ekki ólíklegt að þær
þyki allverðmætar, er stundir líða.
Að þessu sinni er gjafabókin
Kvæðakver Egils Skallagrímsson-
ar. Hefur Jónas Kristjánsson
skjalavörður annazt þá útgáfu og
skrifar hann stutta inngangsritgerð
og skýringar með kvæðunum.
Þetta er í fyrsta sinn, að Egill á
Borg fær kveðskap sinn gefinn út
í sérstakri bók, og mundi ýmsum
skáldbræðrum hans þykja næsta
langt að bíða í þúsund ár eftir
fyrstu ljóðabók sinni.
Ekki er tímabært að ræða hér
verkefni AB í náinni framtíð, en
þar er að sjálfsögðu í mörg horn
að líta. Þess eins skal getið, að
félagið hefur í athugun átak til
víðtækrar kynningar á þeirri þekk-
ingu, sem nýjustu vísindi hafa leitt
í ljós um heim efnis og anda.
Snemma beygist krókurinn...
(Framhald af bls. 47)
brögðum, og þegar þeir, sem stóðu
uppi á kambinum, sáu, hvað í efni
var, flykktust þeir niður í fjöruna
og gerðust sjálfboðaliðar við setn-
inginn, sem reyndist því ekki langr-
ar stundar verk.
Haraldur yrti ekki á neinn, en
gekk þegjandi heim á leið.
Ekki kom það oftar fyrir, að
menn neituðu að fara með Haraldi
á sjó til afgreiðslu skipa, og það
fann hann gjörla á mönnum dag-
inn eftir að þetta gerðist, að þeim
þótti sér ekki hafa farizt stórmann-
iega.
„Eg skil ekki í mér að gefa mig
ekki fram “ sagði einn.
Og maður, sem oftast hafði verið
með Haraldi í ferðum hans út í
skipin, sagði:
„Æ, ég játa það hreinskilnins-
lega, að það setti að mér einhvern
ugg, þegar gatið kom á bátinn —
og manni varð hugsað til þess, sem
gerðist í gær. Það er nefnilega
sjaldan ein báran stök.“
FERS KEYTLA
Bali, kanna, brúsi, ól,
bátur, öngull, fiskur,
járnkarl, reka, haki, hjól,
hnífur, gaffall, diskur.
7. H.
EFNI:
Bls.
Jólahugleiðing (Eiríkur Pálsson) ....................... 3
Fyrsta jólaminningin mín (Gísli Sigurðsson) .......... 4
Jólasnjór (Vigdís Kl. Stefánsdóttir) ................... 7
Hafnfirzk jól (Kjartan Hjálmarsson) .................... 7
Fríkirkjan í Hafnarfirði 50 ára (Gísli Sigurgeirsson) .... 9
Netagerð Kristins Á. Kristjánssonar ................... 12
„Plöntum, vökvum rein við rein“ — Skógræktarfélag
Hafnarfjarðar ..................................... 15
Spjallað við Hallstein sextugan .......................... 17
Hafnarfjarðarkirkja 50 ára (Ólafur Þ. Kristjánsson) .... 20
Válegt á Vífilsstöðum (Halla Magnúsdóttir)............ 23
Sagan af Smelli og Skelli ............................ 25
Sitt af hverju (Óskar Jónsson) ........................... 27
Minningar frá Skaga, 27; Þegar Max Pemberton fórst, 27;
Landslag séð áður en að er komið, 30.
„Vísnaforðinn vex á ný“ — Kvæðamannafélag
Hafnarfjarðar ..................................... 28
Bernskudagar (Friðfinnur Stefánsson)...................... 31
Fljótið hreina (Björn Þorsteinsson) ................... 33
Ferskeytla (J. H. og B. J.) ........................... 36
Myndagetraun .......................................... 41
Snemma beygist krókurinn til þess er verða vill. Tvö brot
úr bókinni „I fararbroddi“ eftir Guðmund G. Hagalín 42
Fréttabréf frá AB .................................... 49
Isfisksútflutningur (Óskar Jónsson) ................... 50