Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.06.1942, Side 2

Heimilisblaðið - 01.06.1942, Side 2
102 H E I M I L I S B L A Ð 1 B "Diðíbcemni oq nani Nú man ég vel, þótt vœri lítið flón, eití vetrarkvöld um bernsku minnar daga. í bœjardyrum blasti við mér sjón, þar blóðug rjúpnakippa hékk á snaga. A nýjung þá ég slarði œði stund sem steini Lostin, klökk við hjartarœtur, þvi sumar báru undir vœngnum und, en aðrar höfðu brotna vœngi og fœtur, í einni svipan setti hroll að mér, er sá ég þessa brotnu limi alla, því blóði drifinn fannhvít fjöður hver mérfanst í bœn um samúð til mín kalla. Ég hafðV ei lengi lifað hér á jörð — og lítið því og harla fátt ég skildi, en hjörtu svona gálaus, grimm og hörð ég gat ei skilið, þótt ég fegin vildi. Ofl virðist lífið kalt og klökknar vart við kvein og tár, sem drjúpa á freðna jörðu. En kringum okkur gert við gœtum bjart og gjarnan lært að beita engan hörðu. Erla. Að rjúpnahjörð, sem eigrar autt um hjarn. sé elt og drœp, að guðs og manna löguin ég vart fœ skilið, ennþá er ég barn, með öðrum hætti þó en fyrr á dögum. Að steikja rjúpur nam ég furðu fljótt og fletta ham af þeirra blóðgu undum. Af gömlum vana hef ég nm það hljóttt þó hjartað kenni til við það á stunduni. Mitt hugarþel í kyljum lífsins kól og klökknar ekki nú eins létt og forðutn, að skuli ég geta haldið heilög jól og hafa sífelt rjúpnasteik á borðutn. Þó vaninn geti hlýju hjarta spilt, þá hygg ég samt, að nœrri myndi láta, ef bernskulund í hófhann hefði ei stilt, þá hefði ég yfir mörgu viljað gráta,

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.