Heimilisblaðið - 01.06.1942, Blaðsíða 13
heimilisblaðið
113
menn og hafa tekið þátt í mörgum tilraun-
um til þess að komast upp á hina ýmsu
tinda á fjallgarðinum. En þátttakendur í
sjálfum leiðangrinum voru 12 þýzkir fjall-
gÖngumenn og 2 enskir liðsforingjar úr
brezka Indlandshernum. Auk urvalsliðs
Þessa Sundar Lewas, voru ráðnir G00 inn-
fseddir burðarkarlar.
Flestir þessara manna voru þó aðeins
notaðir fyrstu áfangana. Voru þá þann-
ig í leiðangrinum um 700 manns og 100
hestar.
Fyrsti áfanginn var fjögra vikna ganga
eftir Indusdalnum, að rótum Nanza Par-
hat. Þá var leiðangurinn kominn í tæp-
lega 4000 mtr. hæð, 65 km. fyrir norð-
vestan Strinagar, við Wuler-vútnið, —
nálægt Bandipore. Og þarna reistu þeir
félagar aðal-bækistöðvar sínar.
Þegar í næsta áfanga, varð að senda
helming burðarkarlanna heimleiðis, Þeir
voru útgerðir af áreynslu. Það er ekki þar
með sagt, að þetta væri neinir vesaling-
nr, því að hverjum manni hafði verið
setlað að bera 25 kg. þungan bagga, og
er það ærið þung byrði á brattri leið og'
erfiðri, þar sem kafað er í djúpum snjó.
I farangri leiðangursmanna var meðal
nnnars talsvert af »hár-fínum« vísinda-
tækjum, stuttbylgju-sendingastöð og við-
töku-tæki, svo að hægt væri að hafa sam-
band við aðal-bæðistöðvarnar.
Á leiðinni, sem farin var, höfðu verið
ákveðnir fyrir fram staðir, þar sem tjalda
skyldi — sjö alls. Á þriðja tjaldastæðinu,
í 5800 mtr. hæð, urðu leiðangursmenn að
hvíla sig í hálfan mánuð, til þess að venj-
ast kuldanum og hinu »þunna« loftslagi,
og safna kröftum til átakanna sem fram
undan voru. A þessum stað lézt einn leið-
angursmanna, Þjóðverjinn Drexel. Varð
lungnabólga honum að bana, hinn 8. júní.
Mánuði síðar, eða í byrjun júlímánaðar,
komst fyrsti hópurinn upp að sjöunda
tjaldstæðinu, í 7600 mtr. hæð, — eða þang-
að, sem Merkl hafði komizt tveim árum
fyrr. Daginn eftir tókst Merkl, Welzen-
Darjeeling-burðarkarlar,
l)ach, Wieland og' sjö Darjeeling'- burðar-
körlum að komast 200 metrum hærra, eða
nær tindinum.
Lengra komust þessir leiðangursmenn
ekki. Mennirnir, sem nefndir voru og
fremstir fóru hrepptu l)lindhríðar-byl með
frosthörku og fórust allir. Enginn veit,
hver urðu afdrif þeirra. Næsti flokkur-
inn, sem komst upp í þessa hæð degi síð-
ar, fann lík nokkurra burðarmannanna,
en þrátt fyrir langa leit fannst enginn
hinna mannanna, hvorki lífs né liðinn.
Þetta slys hafði valdið dauða fjórða
hluta leiðangursmannanna. Og þar eð
sjálfur foringi þeirra var nú fallinn í val-
inn, gáfust hinir upp við frekari tilraun-
ir til uppgöngu á tindinn.
Leiðangrinum lauk þannig með hryggi-
legum hætti. Th. Á. þýddi lauslega.
KVÖLDSJÓN
Þegar sígur sól á mar,
sveipuð Rínareldi,
dansa Ægisdæturnar
dátt á hverju kveldi.
G. G. í Gh.