Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.06.1942, Síða 5

Heimilisblaðið - 01.06.1942, Síða 5
HEIMILISBLAÐIÐ 105 uPpeldi af almannafé. Stjórnin kvaðst e‘gi geta veitt þetta einkalejrfi, því að beir væru svo margir, sem hefðu fundið UPP sams konar verkfæri, enda segir ein- hver rithöfundur þeirra tíma, að allir gleraugnasmiðir hefði þótzt hafa fundiö kíkirinn fyrstir. En hvort Jóhannes Lipp- ershey (Hans Lippersheim) eða Zakarías Jansen hafi gert fyrsta kíkirinn er óráðin gáta; en líklegt þykir, að Jansen hafi ^yrstur smíðað smásjána, en Lippershey híkirinn. Stjórnin hollenzka gerði Lippershey þá Urlausn, að hún skyldi kaupa af honum ^v° kíkira háu verði, en tók það fram, að þeii- yrðu að vera svo gerðir, að sjá ‘nætti með þeim báðum augum. Upp frá hessu barst svo þekkingin á kíkinum út 11 ni alla Norðurálfuna á skömmum tíma. Smíðaði nú hver af öðrum kíkira eftir 'ýsingum eða lauslegum bendingum og aUir þóttust þeir vera frumsmiðir að hon- nm. Einhver varð til þess að hafa hollenzk- an kíki með sér suður til Feneyja og það- Hn til Rómaborgar. Hinn frægi stjörnufræðingur Galileo Halilei (1564—1642) heyrði getið um þetta Vei'kfæri (í maí 1609), hversu sjá mætti með því í fjarska. Og þótt hann hefði ekki séð kíkinn sjálfur né heyrt honum gieinilega lýst, þá tókst honum að smíða nýjan kíki af hugviti sínu. Allar sínar stjörnurannsóknir gerði hann síðan með keiin kíki og varð heimsfrægur af. Galilei var fæddur í borginni Pisa á Halíu, var komin af aðalsætt einni í Flor- eptz. Faðir hans Vincenzo var heimspek- ‘ngur og lærður vel og ritaði margt um Snnglist; en elcki gat hann veitt sonum ^num rækilega fræðslu. En samt tókst palilei, þótt margt hamlaði, að afla sér alsverðrar þekkingar á fornmenntum og Hmennum lærdómsgreinum þeirra tíma; Par að auki var hann orðinn talsvert leik- 'nn í dráttlist, málaralist og söng. er að sjá, sem Galilei hafi sjálfur ætlað að gera dráttlist að æfistarfi sínu, en faðir hans kom honum þá í hásltólann í Pisa; þar átti hann aði nema læknisfræði; en Galilei iðkaði hinar fyrri listir sínar í öllum tómstundum sínum, einkum drátt- listina; varð það til þess, að hann var lát- inn læra mælingafræði. Faðir hans var þessu mótfallinn, en lét þó tilleiðast, að sonur hans fengi að rækja þá gáfuna, sem honum var gefin. Þegar faðir hans dó (1591), hvíldi sú skyldan á honum að annast heimili föð- ur síns. En sköinmu síðar fékk Ulbaldi, vinur hans, því á leið komið, að honum var veitt kennarastaða við háskólann í Padova um sex ára skeið. Þangað flutt- ist hann svo; en lág voru launin, 360 krón- ur á ári. I Padova var hugsunarfrelsi meira en í Pisa. Þar voru ekki fylgismenn kenn- inga Aristótelesar (frumspekinnar) allt af á hælunum á honum til þess að gera hon- um lífið leitt. Smíðaði hann þar ýmsar vélar fyrir ríkið og samdi rit um marg- vísleg efni (sólskífur, aflfræði, stjörnu- fræði, byggmgarlist og jafnvel víggirðing- ar). Allt hafði hann flutt þetta áður í fyr- irlestrum við háskólann og þótti nýstár- legt. Hitamælir fann hann (1597) og not- aði bæði loft og vatn til þeirra mælinga. Um sömu mundir tók hann að skrifast á við stjörnufræðinginn Kepler og héld- ust þau bréfaskifti meðan þeir lifðu báðir. Þá var hann og farinn að nallast að skoð- un Kópernikusar á sólkerfi voru. 1 bréfi til Keplers (1597), kveðst hann aldrei láta sannfæringu sína í ljós um sannindi nýrr- ar kenningar fyrr en nokkrum árum síð- ar en hann hafi öðlast hana. »Efinn er frumkvöðull uppgötvananna fyrir mér og leiðin til að finna sannleikann«, segir hann. Þegar kennslutími Galilei í Padova var á enda, hauð öldungaráðið í Feneyjum honuin kennarastöðu við háskólann þar, og skyldi hann nú hafa 720 krónur að árslaunum.

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.