Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1963, Qupperneq 2

Heimilisblaðið - 01.12.1963, Qupperneq 2
SKUGGSJfl BRÚABSMÍÐAR. Brýr eru einhver elztu mannvirkin, sem smiðuð hafa verið. Gjár og fljót eru trafalar, sem menn þurfa œvinlega að sigrast á. Bjálkabrúin er gerð úr saman- settum bjálkum, og styrkt með burðarstólpum. Steinbogabrúin er byggð eingöngu úr múrsteinum og steinsteypu. Stóreflis múrbogi hvelfist yfir gjána og við enda hans smærri bogar, sem eru einkum til þess gerðir að spara efni. Yfir bogana er síðan jafnað með steinsteypu. Hversvegna lætur hundurinn tunguna lafa? Þegar heitt er í veðri, eða þegar hundurinn hefur reynt mikið á sig, lætur hann tunguna lafa út úr sér. Er til nokkur útskýring á því? Hitastig líkamans þarf helzt alltaf að vera sem jafnast, og til þess að svo sé, þarf líkaminn að hafa einhverja stjórn á hituninni. Þegar vöðvarnir vinna, myndast hiti. Ef ekki væri hægt að hleypa þess- ari hitaukningu að verulegu leyti út úr líkamanum, mundi líkamshitinn hækka svo mjög, að hættulegt yrði. Mannslíkaminn losar sig við hitaaukninguna með vókvaútgufun gegnum svitakirtlana, sem dreifðir eru um allan líkamann, en á hundsskrokknum eru svita- kirtlarnir tiltölulega fáir. Þess vegna verður hann að losna við vökvaútgufunina á öðrum stöðum, og þeir staðir eru munnvatnskirtlamir á tungunni. Þegar ný byggingarefni komu til sögunnar, fóru menn að byggja brýr á nýjan hátt. Þá voru byggðir bogar úr járnbentri steinsteypu, styrktir með gildum stálstöngum, og á þá boga var sjálf brúin fest. Þegar um breiðar gjár eða fljót er að ræða, byggja menn hengibrýr. Þar er akbrautinni haldið uppi af geysidigrum og sterkum virköðlum. Slíkar brýr eru byggðar þar sem menn þurfa að komast af með sem fæsta burðarstöpla, vegna þess að djúpt er til botns eða grunnurinn ekki nægilega harður. Heimilishlaðitf kemur út annan hvern mánuð, tvö tölublöð saman, 44 bls. Verð árgangsins er kr. 50.00. I lausa- sölu kostar hvert blað kr. 10.00. Gjalddagi er 14. april. — Utanáskrift: Heimilisblaðið, Bergstaðastræti 27. Sími 36398. Pósthólf 304. — Prentsm. Oddi h.f. Gleðileg jól! Gott og farsælt komandi ár! Heimilisblaðið.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.