Heimilisblaðið - 01.12.1963, Blaðsíða 3
Engar hópferðir til Seychelleyja
Eftir GORDON GASKILL.
• Hundruð mílna utan viS heimsmenn-
inguna liggja þessar eyjar, þar sem
tíminn stendur kyrr og enn er hægt
að sjá svipmót af týndri paradís ...
Hinn nafntogaði brezki hershöfðingi
Charles Gordon, venjulega nefndur „Gor-
don-Pasha“, kom fram með þá athyglis-
verðu biblíusögulegu kenningu fyrir rúm-
um áttatíu árum, að paradísargarðurinn
Eden hefði ekki verið í landi því, sem við
uú á dögum köllum írak og munnmælin
hafa löngum talið hans forna aðsetur, held-
ur hafi staður hans verið á eyjum nokkr-
um, u. þ. b. fimmtíu að tölu, sem dreifðar
eru um Indlandshaf skammt fyrir sunnan
miðjarðarbaug. Eyjaklasi þessi, Seychell-
eyjarnar, eru nú brezk nýlenda, og jafnvel
enn þann dag í dag flestum mönnum
ókunnar.
íbúar þessara eyja segja líka með stolti
°g hæversku í senn, að þeir séu „hundruð
naílna utan við heimsmenninguna“, og þau
orð eru ekki fjarri sanni í bókstaflegustu
merkingu. Aðaleyjan, Mahé, er í 1600 kíló-
metra fjarlægð frá austurströnd Afríku,
°g 2700 kílómetra frá Indlandi. Engar flug-
samgöngur eru við Seychell-eyjar, og póst-
oátur kemur þangað aðeins einu sinni í
manuði. Flatarmál eyjanna er samtals 400
ierkílómetrar (þ. e. a. s. minna en Lund-
anaborgar), og samanlagður fólksf jöldi —
sem er 42.000 manns — gæti hæglega kom-
izt fyrir á sæmilegum fótboltavelli.
Eyjarnar eru að miklu leyti gleymdar af-
ganginum af veröldinni; aðeins örfáir gest-
ir koma þar við, og það er ódýrt að búa
þar. Auk þess eru þær, eins og einn ferða-
maður komst að orði, „svo heillandi fagr-
ar, að manni verður ekki um sel.“ Brezkur
embættismaður lét þessi orð falla í eyru
mín: „Hvort sem Gordon-Pasha hefur haft
á réttu að standa eða ekki, þá verðið þér
að játa, að paradísargarðurinn hefði átt
að vera einmitt þarna.“
Mahé, sem er stærsta eyjan og langsam-
lega þéttbýlust, er sú eina af þeim, sem
státað getur af borg. Landsvæðið sjálft er
nokkuð illt yfirferðar og innlandið rís upp
1 1000 metra háan f jallgarð. Eyjan er á að
gizka 27 kílómetra löng, en aðeins fáir kíló-
metrar á breidd, en strendur hennar ljósar
cg sendnar. Borgin Victoria hlýtur að vera
einhver hrörlegasta og jafnframt áhyggju-
lausasta borg í víðri veröld. Þar eiga heima
11.000 sálir í ryðguðum bárujárnshreysum.
„Við búum í húsum aðeins til þess að hafa
skjól fyrir regni og hafa frið fyrir öndum
næturinnar," sagði einn eyjarskeggja. Þeg-
ar brezka manntalsnefndin 1960 spurðist
fyrir um landamörk bæjarins, hljóðaði
svarið:
„Þið skuluð bara taka eftir stúlkunum,
sem fara til vinnu á morgnana með skóna