Heimilisblaðið - 01.12.1963, Blaðsíða 40
Hér eru nokkrar skemmtilegar hár-
greiðslur fyrir þær, sem hafa sítt hár.
Þetta eru fyrst og fremst samkvæmishár-
greiðslur.
„Póstra“ af alveg nýrri gerð
hefur verið sýnd í London.
Hjúkrunarkona, sem heldur á
brúðu, sýnir, hvernig nota á
þetta nýja tæki, sem hefur
fengið auknefnið sputnik vegna
lögunar sinnar. Barnið er lagt
á beð, sem hægt er að snúa,
og þessi beður er undir gegn-
særri hettu. Á innbyggðri og
upplýstri töflu má lesa allt það,
sem „fóstran" útfærir.
íþróttavöruverzlun í Miinch-
en í Þýzkalandi hefur sett á
stofn safn með íþróttatækj-
um frá fyrri tímum og ýms-
um löndum. Lengstu skíðin í
safninu eru 3 metrar og eru
frá 1889. Stúlkan virðist vera
hrifin af skíðum, sem hægt
er að leggja saman.
I París hafa verið mynduð
ný samtök, sem kalla sig
Bræðrafélag St. Antons ridd-
aranna, en hlutverk þess er
að heiðra listamenn í matar-
gerð. Fyrstu verðlaunaúthlut-
un fékk Norbert Boinin fyrir
hænsnasteik, búna til úr perlu-
hænum. Á myndinni er hann
með listaverkið og verðlatmin.
260
heimilisblaðið